Fjöldahandtökur á Indlandi vegna prófsvindls

Um 300 manns voru hand­teknir í Bihar-héraði á Indlandi á dögunum vegna próf­svindls. Um var að ræða foreldra og vini skóla­barna sem klifruðu upp veggi skóla­byggingar til að hjálpa börnunum í prófi sem börnin þreyttu. Um 750 skóla­börnum hefur verið vikið úr skóla vegna atviksins. Vefsíða BBC greinir frá málinu.

Talið er að um 1,4 milljónir skóla­barna séu nú að taka braut­skráningar­próf í Bihar héraði um þessar myndir, en niður­stöður prófanna skipta sköpum fyrir framtíð barnanna.

Áðurnefnt atvik þykir allt hið neyðarlegasta fyrir stjórn­völd í Bihar, en umræða um það hefur farið víða á samfélags­miðlum þar sem óspart hefur verið gert grín að því.

Skóla­börnin fengu mörg hver miða með svörum frá vitorðs­mönnum sínum í próf­svindlinu og þá var lögreglu­mönnum, sem stóðu vaktina fyrir utan skólann, mútað fyrir að aðhafast ekkert.

Yfirmaður mennta­mála í Bihar hefur fordæmt atvikið en segir að myndir af því, sem hafa farið sem eldur um sinu á internetinu, segi ekki alla söguna. Hann varaði foreldra við að hjálpa börnum sínum í skóla­prófum, og sagði slíkt bara skaða börnin til langs tíma.

Menntamála­ráðherra héraðsins segir nær ómögulegt að koma alfarið í veg fyrir próf­svindl, vegna fjöldans sem það stunda. „Þrír til fjórir aðstoða hvern námsmann sem þýðir að sex til sjö milljónir eru að hjálpa skóla­börnum að svindla í prófum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár