Sundlaug tengir saman turna í London - Nýir straumar í byggingum

Fasteigna­verkefni í London eru mörg og mismun­andi en eitt sker sig nokkuð frá öðrum. Það er lúxus íbúða byggð sem verið er að reisa skammt frá Battersea orku­verkinu en verkefnið kallast Embassy Gardens. Eitt af því sem verður mest einkennd­andi fyrir byggðina er 25 metra sundlaug sem mun tengja íbúða­turna saman á tíundu hæð í 35 metra hæð.

Myndir af fyrir­hugaðri byggingu á svæðinu, og sund­lauginni þar á meðal, voru gerðar opinberar í dag. Í samtali við breska ríkis­útvarpið BBC segir Sean Mulryan, framkvæmda­stjóri Ballymore, sem mun framleiða og hanna sund­laugina, að þetta verði eins og að synda um loftin í miðborg London. Sund­laugin verður gert úr gleri og sérútbunu glæru plasti.

Fasteigna­verkefnið þykir einstakt á heimsvísu, þegar kemur að uppbyggingu í þéttri borgar­byggð. Heildar­kostnaður er metin á meira en 60 milljónir punda, jafnvirði um fjórtán milljarða króna. Turnarnir tveir og sund­laugin milli þeirra verða tilbúin árið 2019, gangi áætlanir eftir.


Trending on The Verge: London's sky pool will let the super-rich swim through the air http://t.co/jaMm9Yu1wd pic.twitter.com/hGVKGHCvkB


— The Verge (@verge) August 20, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár