Jón Þór vill að skrifstofa Alþingis kanni hvenær trúnaður geti talist brotinn

Formaður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar telur sig ekki hafa brotið trúnað með ummælum um það sem fram fór á fundi nefnd­ar­innar með lög­reglu­stjóra í vik­unni. Hann vill fá skrif­stofu Alþingis til að kanna hvar form­leg mörk um trún­að­ar­rof liggi.

Jón Þór Ólafsson þingmaður og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.
Jón Þór Ólafsson þing­maður og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis. Mynd: Bára Huld Beck

Jón Þór Ólafsson þing­maður Pírata og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis hefur óskað eftir því að skrif­stofa Alþingis kanni hvar form­leg mörk liggja varð­andi trúnað um það sem fram kemur á lok­uðum nefnd­ar­fundum Alþingis. Þetta kemur fram í grein sem þing­mað­ur­inn ritar á Vísi í dag.

Óli Björn Kárason og Brynjar Níelsson þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks hafa sakað bæði Jón Þór og Andrés Inga Jónsson þing­mann Pírata um að hafa brotið trúnað eftir að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd fékk á sinn fund lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til þess að ræða sím­tölin sem hún átti við dóms­mála­ráð­herra á aðfanga­dag.

Bæði Jón Þór og Andrés Ingi telja að orð þeirra í fjöl­miðlum hafi ekki falið í sér trún­að­ar­brest. „Mér dettur helst í hug að Óli Björn hafi ekki hlustað á við­tal Rík­is­út­varps­ins við mig, þó hann treysti sér til að halda því fram að ég hafi þar end­ur­sagt og túlkað orð gests á lok­uðum nefnd­ar­fundi. Það gerði ég ekki,“ skrif­aði Andrés Ingi á Facebook fyrr í dag.

Þar sagði hann við­brögð Óla Björns úr öllu hófi. „Það sem ég sagði var að á fund­inum hafi komið fram atriði sem þurfi að skoða nánar. Það er það sem ég sagði, sama hvernig Óli Björn reynir að snúa því, en ég sem nefnd­ar­maður hlýt ég að geta tjáð mig um fram­hald umfjöll­unar máls í þing­nefnd,“ sagði Andrés Ingi.

„Ef að hóf­stilltu ummælin mín í gær telj­ast sem trún­að­ar­brestur þá held ég að Alþingi sé vandi á höndum - því að það myndi binda hendur alþing­is­manna nokkuð svaka­lega ef þeir mega ekki tala á almennum nótum um störf þing­nefnda Alþingis,“ segir Jón Þór í grein sinni á Vísi í dag.

Þar segir hann enn fremur að hann telji brýnt að fá úr því skorið hvenær trún­aður um það sem fram fari á nefnd­ar­fundum geti talist rof­inn og hvenær ekki. Hann hafi upp­lýst for­seta Alþingis um málið.

Ekki einu meintu trúnaðarbrestir vikunnar

Trún­að­ar­brestur í nefnd­ar­störfum Alþingis hefur verið nokkuð í deigl­unni í vik­unni. Á þriðju­dag sendi heil­brigð­is­ráðu­neytið frá sér yfir­lýs­ingu þar sem Helga Vala Helga­dóttir þing­kona Sam­fylk­ingar og for­maður vel­ferð­ar­nefndar var sökuð um að hafa brotið trúnað með ummælum sínum um rekstur hjúkr­un­ar­heim­ila á vegum sveit­ar­fé­laga.

Hún sagði í sam­tali við Kjarn­ann að hún teldi sig ekki hafa brotið þing­skap­ar­lög, þar sem hún hefði ekki eignað neinum ein­stak­lingi ummælin eða vitnað orð­rétt til þeirra. „Óheim­ilt er að vitna til orða nefnd­ar­manna eða gesta sem falla á lok­uðum nefnd­ar­fundi nema með leyfi við­kom­and­i,“ segir um þetta atriði í þing­skap­ar­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár