Neitar að hafa brotið trúnað og segir „kostulegt“ að ráðuneytið geri athugasemdir

Helga Vala Helga­dóttir telur sig ekki hafa brotið trúnað með því að ræða um efn­is­at­riði sem komu fram á lok­uðum nefnd­ar­fundi í sjón­varps­við­tali. Hún segir stöðu hjúkr­un­ar­heim­ila of alvar­lega fyrir „póli­tíska leiki.“

Helga Vala Helgadóttir formaður velferðarnefndar.
Helga Vala Helga­dóttir for­maður vel­ferð­ar­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ingar segir það „kostu­legt“ að heil­brigð­is­ráð­herra „finni hjá sér þörf“ til að fetta fingur út í orð sín í tíu­fréttum Rík­is­út­varps­ins í gær­kvöldi. Staðan sé „mun alvar­legri en svo að það eigi að fara í póli­tíska leiki í fjöl­miðlum á milli for­manns vel­ferð­ar­nefndar og ráð­herra um hvað sé sagt og hvað sé ósagt.“

Heil­brigð­is­ráðu­neytið sendi frá sér til­kynn­ingu fyrr í dag þar sem fram kom að „alvar­legar athuga­semdir“ væru gerðar við mál­flutn­ing Helgu Völu og hún sökuð um að hafa brotið trúnað um það sem fram fór á nefnd­ar­fundi hjá vel­ferð­ar­nefnd Alþingis, sem hún stýrir.

Nefnd­ar­for­mað­ur­inn segir í sam­tali við Kjarnann að hún telji sig ekki hafa brotið þing­skap­ar­lög með því að segja frá því í sjón­varps­við­tali við RÚV í gær að fram hefði komið á fundi nefnd­ar­innar að hluti sveit­ar­fé­laga lands­ins væri að nýta fé sem ætti að renna til rekst­urs hjúkr­un­ar­heim­ila í eitt­hvað annað en að reka hjúkr­un­ar­heim­ilin.

Hún hafi ekki eignað neinum ein­stak­lingi ummælin eða vitnað orð­rétt til þeirra. „Óheimilt er að vitna til orða nefnd­ar­manna eða gesta sem falla á lok­uðum nefnd­ar­fundi nema með leyfi við­kom­andi,“ segir um þetta atriði í þing­skap­ar­lögum.

Helga Vala segir að það eigi erindi við almenn­ing ef stjórn­völd telji að verið sé að nota almannafé í annað en það sem fyr­ir­skipað er á fjár­lögum. Einnig þurfi sveit­ar­fé­lögin auð­vitað að vita um að slíkar ásak­anir séu uppi á borðum. Um sé að ræða sér­stakt áhyggju­efni.

„Það kann að vera óheppi­legt að full­trúi stjórn­valda tali með svona hætti, en það er ekki eft­ir­lits­að­il­inn, fasta­nefnd Alþingis, sem ber á því ábyrgð,“ segir Helga Vala og bætir við að það sem sé til umræðu á lok­uðum nefnd­ar­fundum þings­ins sé oft til opin­berrar umræðu í fjöl­miðlum.

„Í þing­skap­ar­lögum er afdrátt­ar­laust kveðið á um að trún­aður skuli ríkja um mál­efni sem rædd eru á lok­uðum nefnd­ar­fundum. Heil­brigð­is­ráðu­neytið verður að geta treyst því að sam­skipti við vel­ferð­ar­nefnd byggi á heil­indum, virð­ingu fyrir þeim málum sem þar eru til umfjöll­unar og að trún­aðar sé gætt líkt og áskilið er í lögum,“ sagði hins vegar í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins, sem sendi bréf á Helgu Völu og afrit af því á for­seta Alþingis.

Sveitarfélögin þurfi að fá svör

Helga Vala segir að skeyta­send­ingar um meint trún­að­ar­brot séu þó ekki stóra málið sem þurfi að vera til umræðu. „Staðan er sú að sveit­ar­fé­lögin, eitt af öðru eru að segja upp samn­ingum við ríkið um rekstur hjúkr­un­ar­heim­ila. Sveit­ar­fé­lögin hafa verið að setja umtals­verða fjár­muni í rekst­ur­inn því ríkið er ekki að fjár­magna þetta með við­un­andi hætti,“ segir Helga Vala.

Það sé það sem skipti máli og þurfi að ræða, en „ekki hvað mögu­lega er haft eftir nefnd­ar­for­manni í fasta­nefnd.“

Akur­eyr­ar­bær, Vest­manna­eyja­bær og Horna­fjörður hafa sagt upp samn­ingum sínum um rekstur hjúkr­un­ar­heim­ila. Þessi sveit­ar­fé­lög þurfa, segir Helga Vala, að fá að vita hvort þau eigi að segja upp starfs­fólki sínum og sömu­leiðis segja þeim sem dvelja á hjúkr­un­ar­heim­il­unum að þar sé ekki lengur hægt að vera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár