Heilbrigðisráðuneytið gerir „alvarlegar athugasemdir“ við orð Helgu Völu

Heil­brigð­is­ráðu­neytið telur að mál­flutn­ingur for­manns vel­ferð­ar­nefndar í frétt RÚV um Sjúkra­trygg­ingar Íslands í gær­kvöldi hafi verið ógæti­legur og að trún­aðar um það sem fram fór á lok­uðum nefnd­ar­fundi hafi ekki verið gætt.

Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingar og formaður velferðarnefndar Alþingis.
Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ingar og for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis. Mynd: Bára Huld Beck

Heil­brigð­is­ráðu­neytið seg­ist gera alvar­legar athuga­semdir við mál­flutn­ing Helgu Völu Helga­dóttur for­manns vel­ferð­ar­nefndar Alþingis í sjón­varps­fréttum Rík­is­út­varps­ins í gær­kvöldi. Ráðu­neytið hefur komið athuga­semdum sínum á fram­færi bréf­lega og sent frá sér til­kynn­ingu um málið.

Af til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins má ráða að það telji Helgu Völu hafa rofið trúnað sem eigi að vera um það sem fram fari á lok­uðum nefnd­ar­fundum.

„Í þing­skap­ar­lögum er afdrátt­ar­laust kveðið á um að trún­aður skuli ríkja um mál­efni sem rædd eru á lok­uðum nefnd­ar­fundum. Heil­brigð­is­ráðu­neytið verður að geta treyst því að sam­skipti við vel­ferð­ar­nefnd byggi á heil­indum, virð­ingu fyrir þeim málum sem þar eru til umfjöll­unar og að trún­aðar sé gætt líkt og áskilið er í lögum,“ segir ráðu­neytið í til­kynn­ingu sinni, sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins í hádeg­inu.

Sagði samskiptavanda loða við Sjúkratryggingar

Í frétt RÚV var fjallað um sam­skipti Sjúkra­trygg­inga Íslands við sveit­ar­fé­lög sem reka hjúkr­un­ar­heim­ili, auk þess sem fjallað var um við­ræður Sjúkra­trygg­inga við tal­meina­fræð­inga og sjúkra­þjálf­ara.

Helga Vala sagði í frétt RÚV að „því miður“ virt­ist vera „sam­skipta­vandi milli flestra þeirra sem eru að reyna að ná samn­ingum við Sjúkra­trygg­ingar.“

Einnig sagði Helga Vala frá því að komið hefði fram á fundi nefnd­ar­innar að hluti sveit­ar­fé­laga lands­ins væru að nota það fé sem feng­ist til að reka hjúkr­un­ar­heim­ili í eitt­hvað annað. „Ég hef ekki heyrt það áður og ég held að það sé fróð­legt að spyrja sveit­ar­fé­lögin hvort að þetta sé rétt,“ er haft eftir Helgu Völu á vef RÚV.

„Samn­inga­við­ræður standa yfir milli Sjúkra­trygg­inga Íslands og fyrr­nefndra aðila og bendir ráðu­neytið á að ógæti­leg ummæli í fjöl­miðlum um mál sem rædd eru í trún­aði á lok­uðum fundi vel­ferð­ar­nefndar geti spillt fyrir þeim við­ræðum,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Þar segir einnig að bréf með athuga­semdum hafi verið sent til Helgu Völu og afrit af því til for­seta Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár