Fulltrúi Framsóknar í umhverfis- og skipulagsráði átti hlut í aflandsfélagi

„Þetta félag var stofnað vegna húseignar sem foreldrar okkar eiga á Flórída.“

Stefanía Ingibjörg Sverris­dóttir hefur tekið sæti í umhverfis- og skipulags­ráði Reykja­víkurborgar fyrir hönd Framsóknar­flokksins meðan Guðfinna Jóhanna Guðmunds­dóttir borgar­fulltrúi fer í launa­leyst leyfi. Í Panama-skjölunum kemur fram að Stefanía átti hlut í aflandsfélaginu Zarazen Services S.A. sem var skráð á Bresku Jómfrúreyjunum á tíma­bilinu 2000 til 2012. Foreldrar hennar og bróðir voru einnig skráð sem hluthafar en félagið var stofnað með milli­göngu lögmanns­stofunnar Mossack Fonseca. 

Stundin hefur reynt að ná tali af Stefaníu í dag án árangurs. „Þetta félag var stofnað vegna húseignar sem foreldrar okkar eiga á Flórída, þannig var þetta nú bara,“ segir Sigfús, bróðir Stefaníu, í samtali við Stundina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár