UKIP leyfir Nigel Farage ekki að hætta - dregur afsögn sína til baka

Nigel Farage, leiðtogi Breska sjálfstæðis­flokksins, UKIP, verður áfram formaður flokksins þrátt fyrir að hafa lýst því yfir síðastliðinn föstudag að hann ætlaði að segja af sér embættinu. Framkvæmda­nefnd UKIP hefur hafnað afsögn hans og lýst því yfir að kosninga­barátta flokksins, sem lauk með því að hann fékk 3,8 milljón atkvæði og þrettán prósent atkvæða, en einungis eitt þingsæti, hefði leitt til mikil sigurs. Farage dró í kjölfarið afsögn sína til baka og mun því, líkt og áður sagði, halda áfram sem formaður UKIP. Frá þessu er greint á vef The Telegraph.

Langar tíu mínútur


Farage náði ekki þing­sæti í Suður-Thanet kjör­dæmi í kosn­ing­unum síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Í kjöl­farið til­kynnti hann að hann hygð­ist segja af sem for­maður flokks­ins.Það var Craig Mackinlay, fram­bjóð­andi Íhalds­flokks­ins, sem hlaut flest atkvæði og þar með þing­sætið í kjör­dæm­inu. Hann hlaut tæp­lega 19 þús­und atkvæði og 38 pró­sent, en Farage hlaut rúm­lega 16 þús­und atkvæði, eða 32 pró­sent.

Fyrir kosningarnar sagði Farage að ef hann næði ekki þingsætinu myndi hann segja af sér „innan tíu mínútna“. Það gerði hann hins vegar ekki í ræðu sinni um leið og úrslitin voru kynnt, heldur hélt stuttan blaðamanna­fund um klukku­stund seinna þar sem hann tilkynnti þetta.

Hann sagðist vera maður orða sinna og því ætlaði hann að segja af sér embætti. Hins vegar sagðist hann ætla að íhuga stöðu sína í sumar og mögulega myndi hann bjóða sig aftur fram til embættisins í haust. Hann ætlaði að taka sér frí í allt sumar, í fyrsta skipti frá árinu 1993 að eigin sögn.

Nú er hins vegar ljóst að Farage fer ekki neitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár