Bitcoin svindlari handtekinn - Bitcoin-einingar hurfu úr kerfinu

Mark Karp­eles, for­stjóri jap­anska bitco­in-miðlar­ans Mt. Gox, hef­ur verið hand­tek­inn í Japan, samkvæmt fréttum CNN. Hon­um er gefið að sök að hafa falsað upp­lýs­ing­ar um hversu marg­ar bitco­in-ein­ing­ar voru til staðar í miðlun­ar­kerfi fé­lags­ins og blekkt þannig viðskipta­vini Mt. Gox. Hann hefur neitað að hafa brotið af sér og lét hafa eftir sér í samtali við Wall Street Journal að hann hefði ekki gert neitt rangt.

Bitcoin er fyrsta raun­verulega rafræna myntin, sem hefur enga samsvörun í raun­heimum, og hafa viðskipti með hana verið lífleg allt frá því að þau tóku að vinda upp á sig árið 2009.

Það vakti mikla at­hygli þegar fyrir­tækið Mt. Gox, sem var tekið til gjald­þrota­skipta í fyrra, fór á hliðina eft­ir að bitco­in-ein­ing­ar að jafn­v­irði um fimm­tíu millj­arða króna hurfu úr miðlun­ar­kerf­inu.

Stuttu síðar kvaðst fé­lagið hafa fundið 200 þúsund bitco­in-ein­ing­ar í ra­f­rænu „veski“ sem stjórn­end­ur þess sögðust hafa rang­lega talið að væri tómt. Þetta þótti mörgum grunsamlegt og leiddi til rann­sóknar á fyrir­tækinu og síðan hand­tökunnar nú.


Leader of Mt. Gox Bitcoin Exchange Arrested in Tokyo: (TOKYO)—The head of the failed Japan-based bitcoin excha... http://t.co/QOD9rwinBL


— US Magazine Links (@dlusmagazine) August 1, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár