Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur reglulega saman lista yfir mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag, að mati fjöl­miðilsins. Svona lítur listinn út fyrir daginn í dag.


  1. Seðla­banki Evrópu hóf stórtæk kaup sín á ríkis­skulda­bréfum í dag. Bankinn ætlar að kaupa bréf fyrir 1,1 trilljón evra út september á næsta ári til þess að örva hagkerfi Evrópu.

  2. Apple kynnir snjall­úrið Apple Watch á kynningar­fundi.

  3. Þýski herinn hefur ákveðið að setja eina herdeild undir stjórn pólska hersins og öfugt, sem á að styrkja tengslin milli þessara tveggja ríkja.

  4. Barack Obama hélt tilfinninga­þrungna ræðu í Selma í Alabama um helgina í tilefni af því að fimmtíu ár eru síðan lögreglan þar réðst gegn fólki sem tók þátt í kröfu­göngu fyrir kosninga­rétti blökku­manna.

  5. Hagvöxtur í Japan var minni en spár höfðu gert ráð fyrir á síðasta ársfjórðungi síðasta árs, eða 0,4 prósent.

  6. Leiðtogi Podemos-flokksins á Spáni varaði við því í viðtali að áframhald á niður­skurði og aðhalds­aðgerðum muni leiða til vaxandi stuðnings við hægri­flokka sem eru mótfallnir innflytjendum.

  7. Flugvél sem er knúin sólarorku tók á loft frá Abu Dhabi í morgun, og ætlunin er að fljúga henni hringinn kringum heiminn á næstu fimm mánuðum.

  8. 20 þúsund fingrafara­skannar verða settir upp í verslunum í Venesúela til að koma í veg fyrir að fólk hamstri mat.

  9. Bíla­fram­leiðandinn Tesla dregur saman seglin í Kína vegna dræmari sölu en áætluð var.

  10. Ban Ki-moon, framkvæmda­stjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur kallað eftir því að eyði­legging Íslamska ríkisins á menningar­minjum í Írak verði stöðvuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár