Kínverjar kaupa eitt helsta iðnfyrirtæki Ítalíu

Kínverski fjárfesingasjóðurinn China National Chemical (ChemChina), sem er í eigu kínverska ríkisins, hefur fest kaup á ítalska dekkja­fram­leiðandanum Pirelli, en fyrir­tækið er verðmetið á 7,1 milljarða evra, eða sem nemur ríflega þúsund milljörðum króna.

Pirelli er meðal þekktustu iðnfyrirtækja Ítalíu, ekki síst vegna þess hve ímynd fyrir­tækisins er samofin Formúlu 1 keppninni.

Pirelli to be bought by Chinese firm: Chinese state-owned China National Chemical (ChemChina) is to buy Italia... http://t.co/lLbWvB93ad

— NEWSONSCOTLAND (@NewsOnScotland) March 23, 2015

Strax og fréttirnar af yfir­tökunni spurðust út, eftir lokun markaða á föstudag, þá sendi fyrir­tækið frá sér yfir­lýsingu og staðfesti orðróminn. Jafnframt var tekið fram að forstjórinn, Tronchetti Provera, sem hefur stýrt fyrir­tækinu frá árinu 1986, yrði áfram forstjóri hjá hinum nýju eigendum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár