Orkuverð til álvera 34 prósent lægra hér á landi en heimsmeðaltalið

Orkuverð Lands­virkjunar til álvera á síðasta ári var um 34 prósent lægra en heims­meðaltal, samkvæmt greiningu Öskju Energy, ráðgjafa­fyrirtækis Ketils Sigurjóns­sonar, en vísað er til umfjöllunar CRU Group, þegar kemur að heims­markaðnum.

Verðið féll um tólf prósent á heimsvísu í fyrra, og er skýringin öðru fremur rakin til verð­lækkunar á áli, en algengt er að orku­sölu­samningar til álfyrirtækja séu tengdir, í það minnsta að hluta, verðsveiflum á áli.

Hæst var verðið í Kína, tæplega 45 Bandaríkja­dalir á mega­vattstund, en heims­markaðs­verðið var nálægt 38 Bandaríkja­dölum.

Lands­virkjun fékk að meðaltali 24,5 Bandaríkja­dali á mega­vattstund með flutnings­kostnaði fyrir raforkuna í fyrra, í viðskiptum við stór­iðjuna, en þar vega álver Century Aluminum á Grundar­tanga, Rio Tinto í Straumsvík og á Alcoa á Reyðar­firði, langsamlega þyngst.

Raforku­verðið til stóriðju var 25,9 Bandaríkja­dalir á mega­vattstund árið 2014, samkvæmt upplýsingum sem fram koma í ársreikningi Lands­virkjunar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár