Ritstjóri nýs fríblaðs á Íslandi fagnar lögum gegn femínisma, kynvillu og fóstureyðingum

Guðmundur Örn Ragnarsson prestur er ritstjóri Betra lands sem dreift var á heimili flestra lands­manna í gær. Hann er ánægður með Vladimir Pútín Rúss­lands­forseta fyrir að setja lög „sem fara gegn femínisma, gegn kynvillu, gegn fóstur­eyðingum“.

Ritstjóri
Rit­stjóri Guð­mundur Örn Ragn­ars­son er rit­stjóri Betra lands.

Ekki er hægt að segja annað en blaða­útgáfa á Íslandi sé í blóma með öllum þeim fríblöðum sem koma inn um lúgur lands­manna um þessar mundir. Nú hefur kristilega sjónvarps­stöðin Omega hafið frídreifingu á blaði sem prentað er í 117 þúsund eintökum. Blaðið nefnist Betra land og er presturinn Guðmundur Örn Ragnarsson ritstjóri, sem jafnframt er forstöðu­maður Samfélags trúaðra, sem heldur úti síðunni Biblebelievers.is. Í blaðinu má meðal annars finna grein þar sem Vladimir Pútín er hrósað fyrir loft­árásir í Sýrlandi og honum hampað sem „nútíma krossfara“.

 

Leiðari blaðsins fjallar um þá óvissu­tíma sem nú standa yfir og eru lesendur eindregið hvattir til að horfa á dagskrá Omega. „Það er ánægjulegt að hafa tækifæri til þess að senda inn á heimili lands­manna blaðið Betra land, sem við trúum að eigi eftir að verða til mikillar blessunar fyrir marga, bæði uppörvun og trúar­styrkur á þessum tímum sem við lifum á þar sem mikil óvissa er ríkjandi og margir hlutir eiga sér stað sem er erfitt að hafa stjórn á.

Eiturlyf flæða inn í landið og leggja að velli marga, jafnt unga sem eldri. Það ríkir ráðleysi um hvernig sé hægt að takmarka þetta eða stöðva [...],“ segir í leiðara Betra lands.

Í samtali við Stundina segir Guðmundur Örn að blaðið muni koma út í það minnsta næstu tvo mánuði. Ljóst er að prentun og dreifing á blaði í svo miklu upplagi er ekki ódýr. „Jú, jú, þetta kostar peninga, þetta er svipað brot og Bleikt,“ segir Guðmundur Örn og vísar til nýs prent­blaðs á vegum vefsíðunnar Bleikt.is. Hann segir að erfitt hafi reynst að fá auglýsingar í blaðið. „Það hefur ekki gengið vel hjá okkur á Omega að fá inn auglýsingar. Auglýsendur eru oft hræddir við trúmálin, að þeir verið bendlaðir við það að þeir séu svona heit­trúaðir eins og við. Eins og er þá er þetta gefið út fyrir styrktarfé alveg eins og sjónvarps­stöðin. Við höfum aldrei verið á mótið því að hafa auglýsingar,“ segir Guðmundur Örn.

Hrifinn af Pútín                                                                                       

Ein greinin er þýdd frétt frá Assist News um samstarf rússnesk Rétt­trúnaðar­kirkjunnar við Vladimir Pútín vegna loftárása þess síðarnefnda á Sýrlandi. Í þessari frétt Betra lands er Pútín lýst sem nútíma krossfara og síðasta verndara kristinnar trúar. „Það er e.t.v. kaldhæðnislegt, að Pútín hefur tekið við stöðu nútíma krossfara, og sett Rússland í hlutverk síðasta verjanda Kristinnar trúar,“ segir í fréttinni.

Greinin um Pútín
Greinin um Pútín
 

Guðmundur Örn ritstjóri segist taka undir hvert orð í greininni. „Já, ég er sammála þessu. Ég er búinn að gera miklar rann­sóknir á vefsíðum, meira að segja amerískum, þar sem fjallað er um Pútín og sögu hans. Vestur­lönd hafa verið skeptísk á Pútín og hvort það geti verið að honum hafi verið snúið til kristinnar trúar. Ég get ekki séð annað en eftir mínar rann­sóknir en að hann hafi snúist. Við hefðum getað verið með miklu meira um Pútín í blaðinu og kannski gerum við það. Við höfum gert það á stöðinni,“ segir Guðmundur Örn.

Hann segir að Banda­ríkin og Rússlands hafi skipt um hlutverk sem siðferðis­postular. „Nú eru Banda­ríkin að brjóta niður trúna, styðja kynvillu og fóstur­eyðingar og allt það. Pútín gerir allt öfugt. Hann setur lög sem fara gegn femínisma, gegn kynvillu, gegn fóstur­eyðingum. Allt öfugt, en þessi lög voru við lýði í Banda­ríkjunum,“ segir Guðmundur Örn.

Rússland hóf nýverið loft­árásir í Sýrlandi en Pútín er helsti banda­maður Bashar al-Assad. Greint hefur verið frá því að meirihluti árásanna, um 90 prósent, hefur verið beint að uppreisnar­mönnum sem berjast fyrir lýðræði. Íslamska ríkið hefur að mestu sloppið við loft­árásir Rússa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár