Drekka ógeðisdrykk fyrir málstaðinn

Konurnar á bak við mömmu- og lífs­stíls­bloggið Glam, taka áskor­unum og lofa skemmti­legum mynd­böndum fyrir hverjar tíu þús­und krónur sem safn­ast fyrir Bleiku slauf­una.

Andrea Ísleifsdóttir
Andrea Ísleifs­dóttir „Þeir mega ráða hvað gert verður við pen­ing­inn sem safn­ast. Við myndum vilja styrkja allt í kringum Bleiku slauf­una hvort sem það teng­ist rann­sóknum, lyfja­kostn­aði eða öðru. Þótt upp­hæðin verði ekki há þá telur hver króna.“ Mynd: Heiða Helgadóttir

Andrea Ísleifs­dóttir er ein þeirra sjö kvenna sem standa á bak við mömmu- og lífs­stíls­bloggið Glam. Andrea er 23 ára gömul og á son sem er að verða eins árs. 

„Ásdís Guðný, stofn­andi síð­unnar, kom með þá hug­mynd að við myndum styrkja eitt­hvert góð­gerð­ar­mál á hverju ári. Ég sjálf hef til dæmis verið heims­for­eldri og hef lengi fundið fyrir þörf til að hjálpa. Og við vorum allar sam­mála um að okkur lang­aði til að hjálpa. Við ákváðum því allar að vinna saman að þess­ari söfnun. Við erum með góðan vett­vang – við erum með blogg­síðu, opið Snapchat og mjög virkar inni á Instagram.“

Bleika slaufan varð fyrir val­inu í ár.

„Okkur finnst það vera svo ynd­is­legt verk­efni. Bleika slaufan er svo stórt fyr­ir­bæri og það er svo gaman að leggja því lið; við þekkjum allar ein­hvern sem hefur greinst með krabba­mein, barist við krabba­mein eða lát­ist …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár