Vélmenni sem gengur ekki á vatni heldur hoppar á því

Je-Sung Koh og samstarfs­menn hans við Háskólann í Seoul (Seoul National University) í Suður-Kóreu og Harvard háskóla í Boston í Banda­ríkjunum, hafa fundið upp byltingar­kennda lausn á sviði grevigreindar sem gerir tölvu­stýrðu vélmenni (robot) kleift að hoppa á vatni og halda floti, ekki ósvipað því sem þekkist í dýra­ríkinu hjá vatnaköngulóum og skyldum tegundum (Water Strider).

Þessi vélmenni eru örsmá og aðeins 68 mgr. að þyngd. Þau geta hoppað hæð sína, miðað við að málmfætur séu í uppréttri stöðu, og eru úr blöndu léttmálma svo að hreyfingarnar líkist sem allra mest fínhreyfingum úr dýra­ríkinu.

Frekar þróun á þessum tölvu­stýrðu vélmennum sem geta hoppað á vatni er boðuð, en fyrst var greint frá þessum uppfinningum 30. júlí síðastliðinn.

https://www.youtube.com/watch?v=CnFBXM5641k

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár