ESB hefur áhyggjur af nýjum lögum í Rússlandi - hefta tjáningarfrelsi

Evrópu­sambandið óttast að ný lög í Rússlandi, sem hefta framgang frjálsra alþjóðlegra félaga­samtaka sem ekki eru á vegum hins opinbera, grafi undan mann­réttindum. Samkvæmt frásögn Reuters frétta­stofunnar, tóku lögin gildi á laugar­daginn en þau heimila yfir­völdum að grípa til aðgerða gegn alþjóð­legum samtökum og hópum með banni. Síðan er einnig heimilt ákæra starfs­fólk samtak­anna eða reka það úr landi, en samkvæmt lögunum er hámarks­refsing sex ára fangelsi.

Í viðtali við Yahoo frétta­veituna, er haft eftir talsmanni skrif­stofu utan­ríkismála hjá Evrópu­sambandinu að þessi löggjöf sé áhyggju­efni og hefti tjáningar- og fjölmiðla­frelsi. Auk þess virðist þau fara gegn stjórnar­skrá Rússlands.

Óttast Evrópu­sambandið, og fleiri sem hafa gagnrýnt þessi lög, að með þessari löggjöf geti stjórn­völd, með Vladímir Pútín forseta í broddi fylkingar, gripið til aðgerða gegn „hverjum sem er“, fyrir­tækjum jafnt sem samtökum, og vísað þá til þess að aðgerðirnar standist lög.

Rússland hefur gengið í gegnum efnahags­legan ólgusjó að undan­förnu, eftir að olíuverð lækkaði skarpt, úr 110 Bandaríkja­dölum á fatið niður fyrir 50 dali, á ríflega sjö mánaða tímabili. Því fylgdi mikið fall rúblunnar, og neikvæð margfeldis­áhrif á rússneska hagkerfið. Í ofanálag eru viðskipta­þvinganir Evrópu­sambandsins og Banda­ríkjanna í fullu gildi ennþá, vegna átakanna í Úkraínu, sem gerir Rússum erfiðara um vik í að spyrna við fótum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár