Borgarfulltrúi ráðinn framkvæmdastjóri Icelandic Startups

Kristín Soffía Jóns­dóttir hefur verið borgar­fulltrúi í Reykjavík frá árinu 2014 en tekur nú við starfi framkvæmda­stjóra Icelandic Startups.

Kristín Soffía Jóns­dóttir hefur verið ráðin framkvæmda­stjóri Icelandic Startups. Kristín tekur við af Salóme Guðmunds­dóttur sem lætur af störfum í júní.

Kristín Soffía hefur verið borgar­fulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjavík frá árinu 2014 en hún var áður vara­borgar­fulltrúi, á árunum 2010 til 2014. Hún hefur verið stjórnar­formaður Faxa­flóahafna frá árinu 2014 en á auk þess sæti í Forsætis­nefnd, Umhverfis- og heilbrigðis­ráði sem og í íbúaráði Laugar­dals. Þá er Kristín einnig varamaður í stjórn Strætó Bs. Hún er með BS próf í umhverfis­verkfræði.

„Nýsköpun hefur sjaldan verið mikil­vægari en í dag. Öflugt nýsköpunar­starf mun skapa störf, leysa þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í umhverfis­málum og bæta lífsgæði hér á landi. Ég er þakklát fyrir að fá að leiða félagið á þessum spennandi tímum og hlakka til þess að leggja mitt af mörkum til að styðja enn frekar við nýsköpun hér á landi,“ er haft eftir Kristínu Soffíu í tilkynningu vegna ráðningarinnar.

Icelandic Startups er í eigu Origo, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Samtaka iðnaðarins og Nýsköpunar­sjóðs atvinnu­lífsins. Icelandic Startups veitir frumkvöðlum og sprota­fyrirtækjum á Íslandi stuðning, en félagið stendur meðal annars að viðskipta­hraðlinum Startup Supernova sem er stökk­pallur fyrir sprota­fyrirtæki. Þá skipuleggur Icelandic Startups nýsköpunar­verkefnin Gulleggið, Til sjávar og sveita, Startup orkidea, Snjall­ræði, Hringiðu og Firestarter.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár