Trump boðar alla öldungadeildina á fund um Norður-Kóreu

Staða á Kóreu­skaga verður sífellt flóknari og erfiðari.

Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, veifar af svölum.
Kim Jong-un, leið­togi Norður-Kóreu, veifar af svölum. Mynd: EPA

Donald J. Trump Bandaríkja­forseti hefur boðað alla 100 þingmenn öldunga­deildar Banda­ríkjaþings til fundar í Hvíta húsinu á miðvikudag, þar sem hátt­settir embættis­menn úr starfs­liði forsetans munu upplýsa þá um þróun mála á Kóreu­skaganum.

Varnarmála­ráðherrann James Mattis og Rex Tillerson, utan­ríkis­ráðherra, verða í hópi þeirra sem fara yfir málin með öldunga­deildar­þing­mönnunum, samkvæmt umfjöllun New York Times.

Bandarísk stjórn­völd hafa sagt að nauðsynlegt sé að taka ógnina frá Norður-Kóreu, með leið­togann Kim Jong-Un fremstan í flokki, alvarlega.

Talið er að farið verði yfir allar helstu upplýsingar um stöðu mála í Norður-Kóreu, en í yfir­lýsingum frá hinum óútreiknanlega Kim Jong-Un hefur komið fram að öllum hernaðar­tilburðum Banda­ríkjanna verði mætt af mikilli hörku, og strax við minnstu tilraun til árásar verði stríð hafið.

Á undan­förnum mánuðum og vikum hefur tilraunum Norður-Kóreu með langdræg flug­skeyti fjölgað, og hafa þau skeyti sem hafa lent næst Japan verið í um 300 kílómetra fjarlægð frá landi. Nágrannarnir Suður-Kórea og Japan hafa fordæmt tilraunirnar harðlega og krafist frekari aðgerða af hálfu Sameinuðu þjóðanna og alþjóða­samfélagsins. Undir þetta hafa stjórn­völd í Banda­ríkjunum tekið, og gott betur. Hafa hernaðar­umsvif Bandaríkja­hers á Kóreu­skaga aukist jafnt og þétt og æfingum með Suður-Kóreu fjölgað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár