Saur úr farþegaflugvél rigndi yfir afmælisveislu - myndband

Sextán ára stúlka í Pennsylvaníu ríki í Banda­ríkjunum varð fyrir heldur ógeðslegri lífs­reynslu á dögunum, þegar hún fagnaði afmæli sínu ásamt vinum sínum og fjöl­skyldu, þegar saur tók að rigna yfir afmælis­veisluna hennar sem haldin var utandyra. Frétta­stöðin FOX29 greinir frá málinu.

Svo virðist sem að farþega­flugvél hafi losað salernis­tanka sína rétt í þann mund er hún flaug yfir afmælis­veisluna. Ekki er vitað til að nokkru sinni fyrr hafi verið haldin afmælis­veisla með jafn mikilli bókstaflegri skíta­stemmningu.

„Eins og þruma úr heiðskýru lofti tók skyndi­lega að rigna saur yfir viðstadda, sem lenti meðal annars á sjálfu afmælis­barninu,“ segir stjúpfaðir hinnar sextán ára gömlu Jacinda Cambray, í samtali við bandarísku frétta­stöðina. Um fjörutíu manns tóku þátt í afmælis­veislunni.

Mest af úrgangnum lenti blessunar­lega á tjaldi sem hafði verið komið upp í bakgarðinum í tilefni af afmælis­veislunni.

„Við vorum nýbúin að fá okkur afmælis­kökuna, guði sé lof,“ segir einn afmælis­gesturinn í samtali við frétta­mann FOX29. „Það var nýbúið að fara inn með kökuna þegar einhverju tók að rigna yfir okkur. Það var brúnt, það fór út um allt og fór á allt.“

Hér má sjá afmælis­barnið og kökuna góðu skömmu áður en „skíta­veðrið“ skall á. Mynd: FOX29

Hér má sjá afmælisbarnið og kökuna góðu skömmu áður en „skítaveðrið“ skall á. Mynd: FOX29
Hér má sjá afmæl­is­barnið og kök­una góðu skömmu áður en „skíta­veðrið“ skall á. Mynd: FOX29

Einn afmælis­gesturinn notaði smáforrit í snjall­símanum sínum til að sjá að fimm flugvélar voru á flugi yfir afmælis­veislunni. Fjöl­skylda afmælis­barnsins sendu bandarískum flugmála­yfirvöldum formlega kvörtun vegna atviksins, en farþega­flugvélum er skylt að tæma salernis­tanka sína á jörðu niðri.

Sjá umfjöllun FOX29 í heild sinni hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár