Katrín fékk að sjá drög að skýrslu Ríkisendurskoðunar um miðjan október

For­sæt­is­ráð­herra segir ómögu­legt að segja til um hvort þörf sé á frek­ari rann­sókn á sölu rík­is­ins í hlut Íslands­banka, með skipun rann­sókn­ar­nefndar, fyrr en end­an­leg skýrsla liggur fyrir. Endanleg skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar er vænt­an­leg í nóv­em­ber.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra fékk að sjá drög að skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um sölu­ferlið á Íslands­banka á sama tíma og Rík­is­end­ur­skoðun sendi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, Banka­sýslu rík­is­ins og stjórn hennar drögin til umsagnar þann 12. októ­ber síð­ast­lið­inn. „Það var til þess að leita eftir athuga­semdum okkar við með­ferð máls­ins í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál, þar sem for­sæt­is­ráðu­neytið á aðkomu,“ segir Katrín í sam­tali við Kjarnann. Auk Katrínar eiga Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Lilja D. Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, fast sæti í umræddri ráð­herra­nefnd.

Katrín segir að sér finn­ist mjög erfitt að tjá sig um málið sem stendur, þar sem að hún hafi fengið að sjá drögin í trún­aði á ein­hvers konar frum­stigi. „Ég veit í raun og veru ekki hvernig þessi skýrsla mun koma til með að líta end­an­lega út.“

Hún hafi ekki séð þær umsagnir sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og Banka­sýslan skil­uðu inn um skýrsl­una, en frestur til að skila þeim inn rann út 25. októ­ber síð­ast­lið­inn.

[adspot]Upp­runa­lega átti skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­unar að birt­ast í júní en birt­ing­unni hefur ítrekað verið frestað. Engin föst tíma­setn­ing hefur verið sett niður um það hvenær henni verður skilað til for­seta Alþingis full­bú­inni, en þaðan á skýrslan að fara til umfjöll­unar í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd og verður í kjöl­farið birt opin­ber­lega.

Fyrir liggur að skýrslan verður ekki afhent for­seta Alþingis í þess­ari viku og Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, sagði í fréttum RÚV á mánu­dag að hún gerði ráð fyrir því að skýrslan verði komin til Alþingis í nóv­em­ber­mán­uði.

Aðspurð hvort loka­út­gáfa skýrsl­unnar verði kynnt eftir helgi eða hvort von sé á enn einni frest­un­inni segir Katrín: „Ég held að það sé bara þannig að við fáum að sjá hana þegar hún kemur.“

Háværar kröfur um skipun rannsóknarnefndar

Skýrslan er gerð að beiðni Bjarna Bene­dikts­sonar, en hann bað for­m­­­­­lega um gerð hennar 7. apríl síð­­­­­ast­lið­inn og Rík­­­­­is­end­­­­­ur­­­­­skoðun sam­­­­­þykkti að taka að sér verkið. Það gerð­ist í kjöl­far þess að sölu­­­ferlið var harð­­­lega gagn­rýnt víða í sam­­­fé­lag­inu. Í bréfi ráðu­­­­­­neyt­is­ins kom fram að umræða hafi skap­­­­­­ast um hvort fram­­­­­­kvæmd söl­unnar hafi verið í sam­ræmi við áskilnað laga og upp­­­­­­­­­­­legg stjórn­­­­­­­­­­­valda sem borið var undir fjár­­­­­­laga­­­­­­nefnd og efna­hags- og við­­­­­­skipta­­­­­­nefnd Alþingis til umsagn­­­­­­ar.

Það var gert þrátt fyrir háværar kröfur um að skipuð yrði rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd Alþing­is, sem hefur mun víð­tæk­­­ari rann­­­sókn­­­ar­heim­ild­ir, til að fara yfir söl­una. Í könnun Gallup frá því í apríl kom fram að næstum þrír af hverjum fjórum aðspurðum vildi að rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd yrði skipuð og taldi að ekki væri nægj­an­­­legt að Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun skoð­aði mál­ið. Meiri­hluti kjós­­­enda allra flokka utan eins, Sjálf­­­stæð­is­­­flokks, voru á þeirri skoð­un.

Ýmsir stjórn­ar­þing­menn tóku til máls í umræðum á Alþingi á þessum tíma og sögðu að ef nið­ur­staða þings­ins yrði að úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar dugði ekki til að lægja öld­urnar myndu þeir styðja að komið yrði á fót sjálf­stæðri rann­sókn­ar­nefnd.

Aðspurð hvort hún telji til­efni til þess að skipa rann­sókn­ar­nefnd um sölu­ferlið á Íslands­banka seg­ist Katrín ekki geta tjáð sig um það fyrr en hún sér end­an­legu skýrsl­una.

Ríkisendurskoðun og FME rannsaka sölu

Stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar snýst í meg­in­at­riðum um hvort fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­ið, sem stýrt er af Bjarna Bene­dikts­syni, og Banka­sýsla rík­is­ins, und­ir­stofnun þess, hafi staðið til­hlýði­lega að fram­kvæmd söl­unnar á áður­nefndum 22,5 pró­­sent hlut rík­­is­ins í Íslands­­­banka til 207 fjár­­­festa í lok­uðu útboði fyrir 52,65 millj­­arða króna í mars síð­­ast­liðn­um.

[adspot]Hóp­­­ur­inn sem fékk að kaupa inn­­i­hélt meðal ann­­­ars starfs­­­menn og eig­endur sölu­ráð­gjafa, litla fjár­­­­­festa sem rök­studdur grunur er um að upp­­­­­fylli ekki skil­yrði þess að telj­­­ast fag­fjár­­­­­fest­­­ar, erlenda skamm­­­tíma­­­sjóði sem höfðu sýnt það áður í verki að þeir hafi engan áhuga á að vera lang­­­tíma­fjár­­­­­festar í Íslands­­­­­banka, fólk í virkri lög­­­­­reglu­rann­­­sókn, aðila sem áttu stóra hluti í bönkum fyrir hrun og föður fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Þá rann­sakar Fjár­­­­­mála­eft­ir­lit Seðla­­­banka Íslands (FME) ýmsa þætti söl­unn­­ar, sér­­­stak­­­lega við­­­skipti sem áttu sér stað í aðdrag­anda söl­unnar og atferli hluta þeirra sölu­ráð­gjafa sem ráðnir voru til að selja hluti í bank­an­­­um. Ekk­ert hefur verið gert opin­bert um stöðu þeirrar rann­sóknar en allir fimm inn­­­lendu sölu­ráð­gjaf­­arnir hafa fengið fyr­ir­­spurnir frá Fjár­­­mála­eft­ir­liti Seðla­­banka Íslands vegna rann­­sóknar þess.

Engin áform um að selja hlut í Landsbankanum

Í fjár­laga­frum­varp­inu sem kynnt var í byrjun sept­em­ber var gert ráð fyrir að eft­ir­stand­andi 42,5 pró­­sent hlutur rík­­is­ins í Íslands­­­banka yrði seldur fyrir 75,8 millj­­arða króna á næsta ári. Það var gert þrátt fyrir yfir­lýs­ingu for­­­­manna stjórn­­­­­­­ar­­­­flokk­anna þriggja frá 19. apríl, þar sem segir að ekki verði ráð­ist í sölu á frek­­­­ari hlutum í Íslands­­­­­­­banka að sinni og að sú ákvörðun verði ekki end­ur­skoðuð á meðan að Rík­­is­end­­ur­­skoðun og FME rann­­sök­uðu það sem átti sér stað í mars.

Kjarn­inn greindi frá því fyrr í októ­ber að ekki hafi verið tekin ákvörðun um áfram­hald­andi sölu eign­­­­ar­hluta rík­­­­is­ins í Íslands­­­­­­­banka og að yfir­lýs­ingin stæði þar af leið­andi áfram. Katrín stað­festir að ekk­ert hafi breyst í þeim efnum í sam­tali við Kjarnann í gær. Þar sagði hún einnig að engin áform væru uppi um að selja hlut í Lands­bank­anum en heim­ild er til þess að selja allt að 30 pró­sent hlut í honum í fjár­laga­frum­varp­inu. Bjarni sagði í við­tali við Dagmál á mbl.is í ágúst að hann vildi ekki bara vilja losa ríkið úr eign­ar­hluta í Íslands­banka heldur líka selja hlut í Lands­bank­anum þegar fram í sækir, þótt hann væri þeirrar skoð­unar að ríkið geti vel farið þar með ráð­andi hlut.

Þriðji ráð­herr­ann sem situr í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins er Lilja D. Alfreðs­dóttir. Í svari hennar við fyr­ir­spurn á Alþingi í síð­asta mán­uði sagði að stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins væri að Lands­bank­inn verði áfram í eigu rík­is­ins og að flokk­ur­inn sé til í að skoða hug­myndir þess efnis að bank­inn verði sam­fé­lags­banki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár