Sektasamfélagið í Danmörku

Á hverjum einasta degi árið um kring borga Danir að minnsta kosti sex milljónir króna (120 milljónir íslenskra króna) í sektir. Stöðumæla­sektir, hraðaksturs­sektir, vanskila­sektir á bóka­safninu, sektir fyrir að mæta ekki í læknis­skoðun á réttum tíma og svo framvegis og svo framvegis. Tekjur danska ríkisins, og sveitar­félaganna af sektum, hafa stóraukist á síðustu árum þótt yfir­lýstur tilgangur með innheimtu þeirra sé ekki tekju­öflun.

Frá árinu 2009 hefur upphæðin sem danskur almenningur borgar í sektir af öllu mögulegu tagi rúmlega tvöfaldast og marg­faldast sé litið lengra til baka. Í fyrra nam upphæð sektanna samtals um það bil 2.2 milljörðum króna, tæpum 44 milljörðum íslenskum. Ástæðurnar fyrir þessari miklu aukningu á síðustu árum eru einkum þær að sektar­upphæðir hafa hækkað verulega og ekki síður að í dag eiga borg­ararnir að greiða fyrir ýmislegt sem ekki tíðkaðist áður að innheimta sérstakt gjald fyrir. Og ef ekki er greitt á réttum tíma kemur sekt.

Fyrir hvað er sektað


Kannski væri rétt­ara að snúa þess­ari spurn­ingu við og spyrja fyrir hvað er ekki sektað skrif­aði danskur blaða­maður fyrir nokkrum dögum í grein í dag­blað­inu Berl­ingske og full­yrti jafn­framt að Danir búi í sann­köll­uðu sekta­sam­fé­lagi. Ef bíl er lagt ólög­lega er sektað, ef tím­inn í stöðu­mæl­inum er útrunn­inn eða bíl­eig­andi hefur ekki borgað í stöðu­mæl­inn er sektað, ef ófatl­aður leggur í stæði merkt fötl­uðum má búast við sekt, hraðakstur varðar sektum, ef bókum er ekki skilað á réttum tíma á bóka­safnið fær lán­þeg­inn sekt. Ef komið er fram yfir þann tíma sem mæta á með bíl­inn í skoðun er sektað og eigi maður tíma á sjúkra­húsi í skoðun eða við­tal og lætur ekki sjá sig er sektað.

Sé maður staðinn að því að fleygja frá sér sígarettu­stubbi á almanna­færi má búast við sekt og sá sem léttir á sér í húsasundi eða dimmu skoti fær sekt ef laganna verðir standa hann að verki. Fjölmargt fleira mætti nefna. Nýjasti og mest umtalaði sektarvaldurinn um þessar mundir er hið svonefnda Ferðakort, Rejsekortet. Þetta kort er fyrir­framgreitt fargjalda­kort og þegar lagt er af stað, með lest eða strætó, skal „stimpla sig inn“ og aftur út þegar komið er á leiðar­enda. Fargjaldið dregst þá frá inneigninni. Sá sem ekki stimplar inn í upphafi ferðar fær sekt fyrir að reyna að ferðast ókeypis en ef farþeginn gleymir að stimpla sig út í lok ferðar fær hann sekt. Það er þetta síðarnefnda sem margir gleyma og þá er refsað með sekt. Vegna fjölmennra og háværra mótmæla voru sektir fyrir „útstimplunar­gleymsku“ lækkaðar en vegna fjölda þeirra er um að ræða umtals­verðar upphæðir.

Ekki eru allir sáttir við að fá sekt og á síðasta ári fékk til dæmis Kaupmanna­hafnarborg um það bil 23 þúsund kvartanir eingöngu vegna sekta frá ósáttum bíleigendum.

Hvert renna sektargreiðslurnar


Í stuttu máli sagt renna sekt­ar­greiðsl­urnar í rík­is­sjóð og til sveit­ar­fé­lag­anna. Um með­ferð slíks fjár gilda til­teknar, og strangar, reglur. Sama gildir um þær sektir sem fyr­ir­tæki sem ann­ast rekstur bíla­stæða inn­heimta, hluti þeirra rennur til rík­is­ins.

Fyrir nokkrum mánuðum hringdi verslunar­eigandi í Kaupmanna­höfn í lögregluna og tilkynnti um innbrot. Honum var sagt að lögreglan hefði ekki mannskap né tíma til að sinna þessari tilkynningu. Á sama tíma voru tveir lögreglu­þjónar, hinum megin við götuna, beint á móti búðinni, önnum kafnir við að stöðva hjólreiða­menn og deila út sektum fyrir að virða ekki reglur um hámarks­hraða og fleira.

Verslunar­eigandinn tók mynd af lögreglu­þjónunum og skrifaði einu dagblað­anna, sem birti bréf hans. Yfirmaður í lögreglunni vildi engu svara þegar blaða­maður bar málið undir hann, kvaðst ekki þekkja málavöxtu.

Hver er tilgangurinn með sektum?


Þessa spurn­ingu bar blaða­maður Berl­ingske upp við áður­nefndan yfir­lög­reglu­þjón og sömu­leiðis nokkra þing­menn. Svörin voru öll á þá leið að sektir væru til þess gerðar að bæta hegðan. Þá spurði blaða­maður hvort verið gæti að pen­inga­sjón­ar­mið skipti jafn­vel meira máli í þessum efnum. Enginn vildi bein­línis fall­ast á það sjón­ar­mið en einn eða tveir þing­menn nefndu að auð­vitað skiptu pen­ing­arnir máli fyrir rík­is­kass­ann.

Þótt yfir­lýstur tilgangur sekta, eins og hegninga yfirleitt, sé sá að bæta hegðan og auka öryggi borg­aranna er ekki þar með sagt að sú sé ætíð raunin. Jakob Torfing prófessor við Árósa­háskóla telur fátt benda til að sektir breyti miklu um hegðan fólks. Margir líti á sektirnar sem tekjulind ríksins og í slíkri hugsun felist engin betrun.

Bo Sandemann Rasmussen prófessor við Árósa­háskóla tekur i sama streng og segir það umhugsunar­efni að nú sé í fjárlögum farið að reikna með tekjum vegna sekta. Það veki spurningar um tilgang sektanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár