Vala Höll
Systkinin Valur og Vala Höll eru höll undir Sjalla svo ekki sé dýpra í árinni tekið.
Enda er öll Höllfjölskyldan D-listans megin í tilverunni, foreldrarnir vellauðugt viðskiptafólk. Eplið fellur sjaldan langt frá eplatrénu, Sjallabörn halda tryggð við flokk foreldra sinna.
Skyldi það bara vera af hugsjónaástæðum? Skyldi það vera tilviljun að ungt framáfólk í Sjálfstæðisflokknum er einatt afkvæmi ríkisbubba?
En sussusussu, svona má ekki spyrja.
Víkjum heldur aftur að systkinunum. Vala lærði náttúrulega lögfræði, Valur viðskiptafræði. Hann tók við fjölskyldufyrirtækinu og græðir á tá og fingri.
Systir hans fór í pólitík, varð framakona í Samtökum ungra Sjálfstæðismanna. Næsta skref var framboð í prófkjöri, hún stóð sig afar vel, studd fjárhagslega af fjölskyldunni.
Nú hefur hún verið þingkona um nokkurt skeið og var nýverið skipuð ráðherra.
Hver veit? Kannski verður hún flokksformaður innan tíðar.
Athugasemdir