Þessi færsla er rúmlega 2 mánaða gömul.

FÆÐING ÞJÓÐAR. Andóf gegn rússneskri menningarheimsvaldastefnu

Heimspekingurinn Hegel mun segja einhvers staðar að mælikvarði á það hvort  hópur manna teljist þjóð sé hvort hann er tilbúinn til að verja lönd sín vopnum.

Vilji Úkraínumanna til að verja sig gegn innrás Rússa sýnir alla vega að þeir líta á sig sérstaka þjóð, gagnstætt því sem Pútín harðráði heldur. Skoðanakannanir, sem gerðar hafa verið eftir hernám Krímskaga 2014, sýna aukna  þjóðerniskennd.

Hafi úkraínska þjóðin ekki verið til fyrir innrásina þá fæddist hún á  blóðvöllum  hennar. Gagnstætt því sem alvaldurinn vonaði.

Úkraínumenn ganga nú upp í því að af-rússneska landið, kennt skal eingöngu á úkraínsku frá fimmta skólaári. Níutíu prósent af öllu sjónvarpsefni skuli vera á því tungumáli.

Rifnar eru niður styttur af Katrínu miklu og stórskáldinu rússneska Púskín, götur sem áður voru kenndar við rússneska rithöfunda hafa verið endurskírðar (Strøm 2023).

Lögð er áhersla á það hve illa Moskvuvaldið hefur farið með Úkraínumenn og menningu þeirra. Stalín stóð fyrir Holodomor, bændur voru rændir uppskeru og búfénaði með þeim afleiðingum að milljónir sultu í hel.

Úkraínumenn halda því fram að Stalín hafi viljað með þessu útrýma þeim. En þeir athuga ekki að Holodomor bitnaði líka á bændum annars staðar í Sovétríkjunum.

Þessi helstefna var liður í iðnvæðingu Sovétríkjanna, ránsféð var notað til að fjármagna iðnvæðingu enda efnahagskerfið svo misheppnað að það gat ekki stuðlað að iðnvæðingu með öðrum hætti.  

Ekki þar fyrir að Stalín stuðlaði að rússavæðingu Úkraínu en úkraínsk menning átti sér blómaskeið á fyrstu árunum eftir byltingu.

Hún var nánast bönnuð á dögum Stalíns, 300 af helstu skáldum og menntamönnum landsins voru skotnir af ódrengjum alræðisherrans.

Kannski var Holodomor að einhverju leyti liður í tilraunum hans til að sverfa að úkraínskri menningu.

                                Lunde um rússneska menningarheimsvaldastefnu

Spurningin er hvort Úkraínumenn fara offari í baráttunni gegn rússneskum áhrifum. Alla vega ber þeim að viðurkenna að stór hluti þjóðarinnar er rússneskumælandi, nokkuð  sem ekki gerir þá að Rússum.

Írar tala flestir ensku en engum dettur í hug að kalla þá Englendinga. Zelenskí forseti  hefur sem kunnugt er  rússnesku að móðurmáli.

En norskur prófessor í rússnesku, Ingunn Lunde að nafni,  ver úkraínskt andóf gegn rússneskum bókmenntum með athyglisverðum rökum (Lunde 2023).

Menning hafi löngum verið tæki sem rússneska heimsveldið hafi notað til að efla vald sitt. Þegar á átjándu öld höfðu Rússakeisarar hirðskáld sem lofuðu þá.

Og gagnstætt sem margir halda hafi hinir miklu rithöfundar nítjándu aldarinnar verið fremur valdsins megin en hitt. Þjóðskáldið Alexander Púskín hafi vissulega oft verið gagnrýninn á samfélagið, jafnvel á keisarann,  og þurft að berjast við ritskoðunina.

En hann hafi ekki gagnrýnt  hið rússneska heimsveldi,  hann hafi staðhæft að  Rússar hafi  fært íbúum Kákasusfjalla  siðmenningu þegar þeir lögðu þau undir sig  (ég spyr: Í líki bændaánauðar?).

Lunde bætir við að  í  kvæði um orrustuna við Poltava lofi Púskin  heimsveldið og fordæmi úkraínska kósakkahöfðingjann Ivan Mazepa sem barðist með Svíum gegn Pétri mikla, Rússajöfri.

Til að gera illt verra hafi Púskín ort kvæði þar sem hann verji það hvernig Rússaher braut á bak aftur uppreisn Pólverja árið 1831 en þeir voru kúgaðir af  Moskvuvaldinu. Moskvumenn bönnuðu pólska tungu. 

Hvað um Dostójevskí? Sat hann ekki í fangabúðum vegna andófsstarfsemi? Vissulega, svarar Lunde, en hann breytti um skoðun, tók að aðhyllast trúar-mýstík og rússneska þjóðrembu.

Lunde segir að ekki sé óalgengt meðal rússneskra menntamanna að þeir berjist fyrir auknu einstaklingsfrelsi en verji um leið heimsveldið rússneska.

Gott dæmi sé nóbelshafinn Josef Brodskí sem lenti illa í Sovétvaldinu og fluttist til Bandaríkjanna.

Hann hafi ort níðkvæði um Úkraínu þegar landið öðlaðist sjálfsstæði.

Eftir að hafa hellt svívirðingum yfir Úkraínumenn hafi hann lokið kvæðinu á að segja að á dauðastund muni Úkraínumaðurinn vitna í Púskín, ekki í „lygar“ Taras Sévstenkó, þjóðskálds Úkraínumanna.

Pútín hefði ekki getað gert betur.

Lunde segir að ekki megi  gleyma því að Rússaher stundi menningarstríð á hernumdu svæðunum. Úkraínskum  bókum sé hent út úr bókasöfnum, ég bæti við:  Samanber bókabrennur nasista. Einungis sé kennt á rússnesku í skólum, söfn eyðilögð og menningarverðmætum stolið.

Í Maríupol, sem rússnesku yfirgangsseggirnir eyðilögðu, sé komið fyrir  stórum skiltum með myndum af rússneskum rithöfundum. Þeir séu tæki heimsveldisins. 

Lunde  gefur í skyn að úkraínskuvæðing Kænugarðsstjórnar sé skiljanlegt viðbragð við rússneskri menningarheimsvaldastefnu.

Lokaorð

Ég er ekki dómbær á  það sem Lunde hefur til málanna að leggja um rússnesk skáld og meinta undirlægjusemi þeirra við Moskvu-heimsveldið.

En hitt veit ég  að Rússar hafa löngum reynt að Rússavæða Úkraínumenn og einatt beitt valdi til þess arna.  

Þeir síðarnefndu ganga kannski of langt í baráttu  sinni gegn Rússavæðingunni en barátta þeirra er skiljanleg í ljósi menningarglæpanna sem Rússar fremja á hernumdu svæðunum.

Napóleon ætlaði sér að ríkja yfir Evrópu en afleiðingin af brölti hans var að þjóðernisstefnu og frjálslyndi óx hvarvetna fiskur um hrygg. Með orðum Hegels þá var hann tæki hins bragðvísa heimsanda.

Þótt   Napóleon væri yfirgangssamur átókrat þá má hann eiga að hann efldi  réttarríkið,  stuðlaði að frelsun Gyðinga og gaf ánauðugum rússneskum bændum frelsi hvarvetna þar sem stórher hans fór um rússneska grund.

Hefði hann sigrað keisarann rússneska  væri kannski enginn Pútín í Kreml. Sá hefur rústað réttaríkið, barist gegn frjálslyndi  og ætlað sér að leggja Úkraínu undir sig.

Hann uppskar annað, fæðingu hinnar úkraínsku þjóðar.

 

Heimildir:

Kvæði Brodskís um Úkraínu

https://en.wikipedia.org/wiki/On_the_Independence_of_Ukraine Sótt 8/1 2023

Lunde, Ingunn 2023: „Imperiets diktere“, Morgenbladet, Nr. 1, 6-12 janúar.

Strøm, Ole Kristian 2023: „Slik bryter Ukraina med Russland“, Slik bryter Ukraina med Russland (msn.com)   Sótt 8/1 2023.

 

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið á blogginu

Sverrir Norland
1
Blogg

Sverrir Norland

Að kulna eða ekki kulna

Í morg­un vakn­aði ég og var eitt­hvað lufsu­leg­ur. Ég fatt­aði strax að ég var kom­inn með kuln­un. Þeg­ar ég hafði drukk­ið einn kaffi­bolla fatt­aði ég hins veg­ar að ég hafði rang­greint mig með kuln­un. Ég var ekki með kuln­un. Þeg­ar ég hafði rok­ið af stað á fyrsta fund dags­ins og var að læsa reið­hjól­inu mínu við staur hafði ég hins...

Nýtt efni

Þegar framtíðin hverfur má leita skjóls í eldamennsku
GagnrýniHo did I get to the bomb shelter

Þeg­ar fram­tíð­in hverf­ur má leita skjóls í elda­mennsku

List­fræð­ing­ur­inn Mar­grét Elísa­bet Ólafs­dótt­ir brá sér í Nor­ræna hús­ið og rýndi í sýn­ingu lista­manna frá Úkraínu.
Njáls saga Einars Kárasonar – með Flugumýrartvisti
GagnrýniNálsbrennusaga og flugumýrartvist

Njáls saga Ein­ars Kára­son­ar – með Flugu­mýr­art­visti

Leik­hús­fræð­ing­ur­inn Jakob S. Jóns­son skellti sér í Borg­ar­nes og sá Ein­ar Kára­son í Land­náms­setrinu.
Fyrirbæri: Miðstöð listamanna og áhugafólks um myndlist
MenningHús & Hillbilly

Fyr­ir­bæri: Mið­stöð lista­manna og áhuga­fólks um mynd­list

Í húsi á Æg­is­göt­unni sem byggt var fyr­ir verk­smiðju eru nú vinnu­stof­ur lista­manna, sýn­ing­ar­sal­ur og vett­vang­ur fyr­ir fólk sem vill kaupa sam­tíma­list beint af vinnu­stof­um lista­manna.
Vel gerlegt að ná verðbólguvæntingunum niður – „Ég hef trú á því og við munum skila því í hús“
Fréttir

Vel ger­legt að ná verð­bólgu­vænt­ing­un­um nið­ur – „Ég hef trú á því og við mun­um skila því í hús“

Það er stað­reynd að mark­að­irn­ir hafa misst trú á að stjórn­völd nái verð­bólg­unni nið­ur á næstu miss­er­um, sam­kvæmt fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. „Við verð­um að gang­ast við því,“ seg­ir hann. Taka þurfi hönd­um sam­an og ná nið­ur verð­bólgu­vænt­ing­un­um.
Lögreglan rannsakar stórfellt brot í nánu sambandi og tilraun til manndráps
Fréttir

Lög­regl­an rann­sak­ar stór­fellt brot í nánu sam­bandi og til­raun til mann­dráps

Lög­regl­an á Suð­ur­nesj­um hef­ur haft til rann­sókn­ar ætl­að stór­fellt brot í nánu sam­bandi og ætl­aða til­raun til mann­dráps frá 25. fe­brú­ar. Karl­mað­ur á fer­tugs­aldri hef­ur ver­ið í gæslu­varð­haldi frá því að mál­ið kom upp.
Loftslagsráðherra og raunveruleikinn
Tryggvi Felixson
Aðsent

Tryggvi Felixson

Lofts­lags­ráð­herra og raun­veru­leik­inn

Formað­ur Land­vernd­ar seg­ir að til að leysa lofts­lags­vand­ann sé nauð­syn­legt að beita meng­un­ar­bóta­regl­unni á alla geira at­vinnu­lífs­ins. Bæði OECD og Al­þjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hafi ít­rek­að bent á að skatt­ar og gjöld á meng­un séu skil­virk­asta leið­in til að ná mark­mið­um í um­hverf­is­mál­um. „Það er löngu tíma­bært að rík­is­stjórn­in og lofts­lags­ráð­herra við­ur­kenni hið aug­ljósa í þess­um mál­um.“
Hefði stutt útlendingafrumvarpið hefði hún verið á landinu
Fréttir

Hefði stutt út­lend­inga­frum­varp­ið hefði hún ver­ið á land­inu

Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra skil­ur vel að út­lend­inga­mál séu um­deild en hún seg­ir að á lands­fundi Vinstri grænna hafi eigi að síð­ur kom­ið fram yf­ir­gnæf­andi stuðn­ing­ur við þing­menn hreyf­ing­ar­inn­ar og ráð­herra. Sex þing­menn VG sam­þykktu út­lend­inga­frum­varp dóms­mála­ráð­herra í síð­ustu viku.
Lygar, járnsprengjur og heitt blý
Flækjusagan

Lyg­ar, járn­sprengj­ur og heitt blý

Tveir gaml­ir menn bú­ast til brott­ferð­ar í Banda­ríkj­un­um, Daniel Ells­berg og Jimmy Cart­er, fyrr­ver­andi for­seti. Báð­ir reyndu að bæta heim­inn, hvor á sinn hátt.
Listræn sýn að handan
Viðtal

List­ræn sýn að hand­an

Gjörn­inga­klúbb­inn þarf vart að kynna en hann stofn­uðu Eirún Sig­urð­ar­dótt­ir, Jóní Jóns­dótt­ir og Sigrún Hrólfs­dótt­ir ár­ið 1996 en síð­ast­nefnd hef­ur ekki starf­að með hópn­um síð­an 2016. Í Í gegn­um tíð­ina hef­ur Gjörn­inga­klúbbur­inn sýnt og kom­ið fram á fjölda einka- og sam­sýn­inga úti um all­an heim, já, og brall­að ýmsi­legt í merku sam­starfi við ann­að lista­fólk, eins og marg­ir vita.
Ausa sér yfir ríkisstjórnina vegna vaxtahækkana
Fréttir

Ausa sér yf­ir rík­is­stjórn­ina vegna vaxta­hækk­ana

Nokkr­ir þing­menn létu stór orð falla á Al­þingi í dag eft­ir stýri­vaxta­hækk­un Seðla­banka Ís­lands. Einn þing­mað­ur sagði að rík­is­stjórn­in væri „kjark­laus og verk­stola“ og ann­ar að hún styddi „að­för að al­menn­ingi“. Enn ann­ar sagði að nú þyrfti þing­ið að hefja sig yf­ir „hvers­dags­þras­ið“ og leita sam­eig­in­legra lausna til að rétta við bók­hald rík­is­ins.
Bókatíð
Friðgeir Einarsson
Pistill

Friðgeir Einarsson

Bóka­tíð

Frið­geir Ein­ars­son gerði heið­ar­lega til­raun til að lesa sig inn í sumar­ið. „Ég var bú­inn að upp­hugsa dá­góð­an lista, þeg­ar það fór snögg­lega aft­ur að kólna.“
Á bilinu tveir til 166 leikskólakennarar hafa útskrifast árlega frá 2005
Fréttir

Á bil­inu tveir til 166 leik­skóla­kenn­ar­ar hafa út­skrif­ast ár­lega frá 2005

Braut­skrán­ing­um úr leik­skóla­kenn­ara­fræði fækk­aði gríð­ar­lega eft­ir að nám­ið var lengt úr þrem­ur í fimm ár­ið 2008. Braut­skrán­ing­um fer nú aft­ur fjölg­andi eft­ir að meist­ara­nám til kennslu var inn­leitt ár­ið 2020 auk laga­breyt­ing­ar sem veit­ir kennslu­rétt­indi óháð skóla­stigi. Því er ekki víst að all­ir leik­skóla­kenn­ar­ar skili sér inn á leik­skóla­stig­ið.