Þessi færsla er meira en 4 ára gömul.

Um frægasta sjúkling jarðarkringlunnar

 

Hver skyldi það vera? Hver annar en valdamesti maður heimsins, Donald J. Trump, sýktur af þeirri veiru sem hann hefur sagt hættulitla!

Freistandi væri að gera grín að kappanum, rifja upp ummæli hans um faraldurinn. Eða hneykslast á illa dulinni stuðningsyfirlýsingu hans við rasísk ofbeldissamtök Stoltra stráka. Eða fjargviðrast yfir dónaskap hans í kappræðunum við Biden.

Í stað þess hyggst ég taka eitt og annað sem hann segir alvarlega og sýna fram á að hann hafi á röngu að standa. Góðfús lesandi fyrirgefur mér vonandi að endurtaka ýmislegt sem ég hef áður sagt um kléna visku sjúklingsins fræga.

En áður en lengra er haldið skulu lesendur minntir á  að ekkert er nýtt undir sólinni. Fyrir fjögur þúsund árum reyndi Súmerakonungur einn  að stemma stigu við aðflutningi semískra hirðingja með því að byggja 200 kílómetra múr. Tilraunin mistókst. 

Þjóðir eru ekki fyrirtæki.

Trump  hefur  úthúðað viðskiptaþjóðum Bandaríkjanna og setur stórtolla á innflutning frá þeim. En hann skilur ekki að þjóðir eru ekki fyrirtæki.

Löngu fyrir forsetatíð hans skrifaði nóbelshagfræðingurinn Paul Krugman grein þar sem hann benti á að samkeppni þjóða sé gagnólík samkeppni fyrirtækja. En viðskiptamenn haldi ranglega að þjóðir keppi um markaðshlutdeild með þeim hætti að  vinni ein þeirra tapi hinar. Þeir skilji ekki að  vinni Japan markaðshlutdeild sem Bandaríkin áður höfðu þýðir það ekki að Bandaríkjamenn sjálfkrafa tapi. Þeir geta nú keypt varning frá Japan sem er ódýrari en sá bandaríski var, þannig græða bæði Bandaríkjamenn og Japanir.

Viðskiptamennirnir  athugi ekki muninn á einkafyrirtækjum og þjóðum, ef Pepsi vinnur markaðshlutdeild þá tapar Kók venjulega enda kaupa Kókstarfsmenn ekki endilega Pepsí í stórum stíl.  En Bandaríkjamenn og Japanir kaupa vörur hver af öðrum í miklum mæli. Og lönd fara ekki á hausinn vegna samkeppni þótt einkafyrirtæki geri það.

Viðskiptamennirnir haldi líka  að búi land viðskiptahalla þá þýði  það að landið sé að tapa efnahagslega. En þeir skilji ekki að slíkur halli getur þýtt að landið laði til sín fjármagn frá öðrum löndum og tapi því ekki á hallanum heldur græði  ( bæta má við að Bandaríkin eru land sem laðar til sín erlent fjármagn og því engin furða þótt  þau búi við viðskiptahalla). Trump hugsar augljóslega með sama hætti og þessir viðskiptamenn enda einn þeirra.

Viðskiptahalli og arðrán

Í ofan á lag segja staðreyndavaktir að hann ofmeti viðskiptahalla Bandaríkjanna, hann athugi ekki að þótt mikill halli sé á viðskiptum með hluti þá flytji Bandaríkin meira  út af  þjónustu en þeir flytji inn.

Hann staðhæfir að Kínverjar vilji ekki kaupa bandaríska bíla en staðreyndavakt ein segir að þetta sé alrangt, þeir flytji inn meira af bílum en Bandaríkin flytji inn af bílum, framleiddum í Kína.

Hvað með staðhæfingar hans um svindl Kínverja, þeir steli hugmyndum frá Bandaríkjum og noti í framleiðslu? Það er sennilega eitthvað til í þessu, alla vega ef marka má staðreyndavakt Washington Post sem yfirleitt hrekur allt sem Trump segir.

En eiga Kínverjar einkarétt á að nota varasamar aðferðir til að styrkja efnahagslíf sitt? Sumir segja að Bandaríkjamenn séu ekki hætishót betri, talsmenn Samsung hafa  alltént haldið því fram að fyrirtækinu sé mismunað á Bandaríkjamarkaði. 

Í bók sinni Why do People Hate America? segja þau Merryl Wyn Davies og Ziauddin Sardar að eftir að gullfóturinn hvarf hafi dollarinn orðið heimsmynt og Bandaríkin getað manípulerað heimshagkerfið sér í vil. Þeir fjármagni hagvöxt sinn með  sparnaði annarra þjóða. Þess utan sé hnattvæðingin á þeirra forsendum:

„The US interprets trade liberalisation to mean  one way, open access for American mulitnationals and businesses“ (Davies og Sardar 2005: 76).

Ekki nóg með það, alls konar samningar á vegum W.T.O. tryggi bandarískum landbúnaði öfluga stöðu gagnvart landbúnaði þriðja heims ríkja með þeim afleiðingum að þau síðastnefndu tapi tveimur milljörðum dollara á dag. 

Nú eru Sardar og Davies ansi öfgakennd í andúð sinni á Bandaríkjunum. Þau skilja ekki  að sennilega fjármagna  Bandaríkjamenn  hagvöxt sinn  að miklu leyti með hugviti sínu, samanber firnasterka stöðu bandaríska hugbúnaðariðnaðarins.

Varla stela stórfyrirtækin í Kísildal hugmyndum sínum frá hinum þriðja heimi. Og byggi auður Bandaríkjanna á arðráni þriðja heimsins má spyrja hvers vegna meint leppríki þeirra í Austur-Asíu hafa blómgast efnahagslega.  Suður-Kórea var álíka fátæk og Pakistan um 1953, í dag er landið eitt ríkasta land í heimi.

Auk heldur má velta því fyrir sér  hvers vegna arabísku olíuríkin eru vellauðug. Þau væru bláfátæk ef kenningin um vestrænt arðrán á hráefnaútflutingsríkjum  ætti við rök að styðjast.

Þvert á móti hafa þau hagnast  á hugviti Vesturlandabúa, þeir fundu upp bensínvélina sem gerði olíu verðmæta. Og kaupa einhver reiðinnar býsn af henni. En það útilokar alls ekki að Vesturlönd hafi á sínum tíma auðgast á nýlenduarðráni.

Alltént gæti verið sannleikskjarni í gagnrýni Davies og Sardars, það er frekar sennilegt að Bandaríkin  fjármagni  hagvöxt sinn sum part með  ofurveldi dollarans. Og að þriðji heimurinn tapi á landbúnaðarstefnu landsins og annarra vestrænna ríkja, að Íslandi meðtöldu.

Kannski græða þriðjaheims ríkin að einherju leyti  á hugviti Bandaríkjamanna en tapa engu minna á landbúnaðarstefnu þeirra. „Drottinn gaf og Drottinn tók“.

Sannleikurinn hefur þá leiðu áráttu að liggja ekki á lausu.   Þess vegna gæti skunkur eins og Trump rambað á hann einstaka sinnum og þau Davies og Sardar gætu slysast til að  segja satt.

Franski fræðimaðurinn Emmanuel Todd er öllu hógværari í gagnrýni sinni á Bandaríkin en þau. Hann segir í bók sinni Eftir daga heimsveldisins (fr. Après Empire) að Bandaríkin laði ekki til sín fjármagn bara vegna þess vegna áhættusækið og gróðavænlegt bandarískt hagkerfi (Todd 2003).

Miklu heldur vegna þess að ofurveldi Bandaríkjanna sé trygging fyrir því að innflutt fjármagn glatist ekki. Með því græði Bandaríkjamenn einhver ósköp með óefnahagslegum hætti.

Sé svo er um að ræða rentu, fjármagn sem fæst án þess að menn leggi eitthvað á sig eða á móti.

Enn um Trump, Kínverja o.fl.

Víkjum aftur að Trump og Kínverjum. Jafnvel þótt Kínverjar kunni að beita  vafasömum aðferðum þá er ekki þar með sagt að innflutningur á ódýrum varningi frá Kína sé ekki flestum Bandaríkjamönnum í hag. Með því að borga minna fyrir vörur verður eftir meira fé til að fjárfesta með, t.d. í störfum handa þeim sem missa vinnuna vegna samkeppni frá Kína.

Reyndar segir ekki ómerkari maður en Alan Greenspan að það sé alger firra  að aðrar þjóðir ræni Bandaríkjamenn. Trump hefur jú hvað eftir annað staðhæft að svo sé og notar sem sannindamerki viðskiptahalla Bandaríkjanna. En eins og áður hefur komið fram er það tóm tjara að viðskiptahalli hljóti að þýða að lönd sé arðrænd af öðrum löndum.

Og ef Bandaríkjamenn væru svona arðrændir, af hverju hafa þeir ríku vestanhafs orðið svona ógnarríkir? Auður þeirra vex hrikamikið ár hvert á meðan bandarískur almenningur má snapa gams.

En ef allir Bandaríkjamenn væru arðrændir af útlendingum þá myndi þessi mikla auðsöfnun tæpast hafa átt sér stað.

Trump hefur staðhæft að mikill fjöldi meira eða minna ólöglegra innflytjenda valdi launalækkun og atvinnuleysi. Það er sennilega eitthvað til í því.

En hann nefnir ekki það sem flestir hagfræðingar telja meginorsök þessarar vanþróunar, stóraukin sjálfvirkni í efnahagslífinu (þetta ferli kann að staðfesta kenningar Karls Marx sem taldi að aukin sjálfvirkni  myndi ríða kapítalismanum á slig!). 

Paul Krugman telur reyndar að stefna Repúblikana eigi mikinn þátrt í þessari óheillaþróun, þeir hafi kerfisbundið ýtt undir rassgatið á auðkýfingum og stórfyrirtækjum en níðst á millistéttinni og fátæklingunum.

NATO.

Enn  eitt atriðið í arðránsvæli Trumps eru staðhæfingarnar um NATO. Bandaríkin fjármagni 80% af útgjöldum NATOs. Staðreyndavaktir hafa hrakið þessa vitleysu, Trump talar eins og öll útgjöld Bandaríkjanna til hermála séu útgjöld til NATO en stór hluti þeirra varði hernaðarumsvif Bandaríkjanna utan NATOríkjanna.

Hann heldur því fram að NATO ríki sem noti minna en 2% af þjóðartekjum til hernaðarútgjalda skuldi Bandaríkjunum milljarða. En hann virðist ekki vita að þessi ríki hafa ekki tekið á sig neinar skuldbindingar um hernaðarútgjöld heldur voru NATO hvött til að auka hernaðarútgjöld  sem þessu nemi (2% af þjóðartekjum). Þess utan borga Bandaríkin ekki meintan mismun, það sem gerist er einfaldlega að flest Nató ríki borga minna en 2% þjóðartekna til eigin varna.  

Hann skilur heldur ekki að það að veita ýmsum ríkjum hervernd þjónar hagsmunum Bandaríkjanna og er hluti af varnarkerfi þeirra. Ef fjandsamleg stórveldi næðu tangarhaldi á Evrópuríkjunum, Japan og Suður-Kóreu myndi það ógna öryggi Bandaríkjanna og stórskaða þau efnahagslega.

Herstöðin á Miðnesheiði gat ekki varið Ísland en lék mikilvægt hlutverk í varnarstarfi Bandaríkjanna með því að fylgjast með sovéskum herþotum, herskipum og kafbátum.

Lokaorð

Af þessu má sjá að staðhæfingar Trumps um að aðrar þjóðir ræni Bandaríkin er tóm þvæla. Lýðskrumarar hafa löngum beitt þeirri aðferð að kenna öðrum þjóðum og trúflokkum um það sem miður fer í landi þeirra. Hvað sagði Hitler aftur um Gyðingana?

Fyrir hálfri öld söng hljómsveitin Steppenwolf mikinn brag sem bar heitið America. Hún söng:

„America, where are you now,

don‘t you care about your sons and daughters,

don‘t you know,  we need you now,

we can‘t  fight alone against the monster“

Þann þriðja nóvember næstkomandi gefst Könum kostur á að hrekja skrímslið úr hvíta húsinu.

Heimildir:

Merryl Wyn Davies og Ziauddin Sardar (2005): Why Do People Hate America? London: Icon Books.

Emmanuel Todd (2003): Weltmacht USA. Ein Nachruf (þýðendur Ursel Schäfer og Enrico Heinemann). München/Zürich:Piper.

Gagmrýni á W.T.O https://en.wikipedia.org/wiki/Criticism_of_the_World_Trade_Organization

Staðreyndaathugun um viðskipti BNA https://www.cnbc.com/2018/06/11/the-associated-press-ap-fact-check-trump-ignores-strong-points-in-us-trade.html

Krugman: „A Country is not a Company“https://hbr.org/1996/01/a-country-is-not-a-company

Staðreyndaathugun um NATÓ https://www.factcheck.org/2017/12/distorted-nato-funding-figure/

Um Samsung og BNA https://www.mandourlaw.com/blog/both-apple-and-samsung-argue-that-1-05-billion-patent-infringement-verdict-is-unfair/

Staðreyndaathugun um Kína og bíla https://www.factcheck.org/2018/04/trade-surplus-in-cars-with-china/

Ummæli Greenspans: https://www.cnbc.com/2018/06/13/alan-greenspan-on-trade-the-notion-that-foreigners-are-ripping-us-off-is-nonsense.html?recirc=taboolainternal

Steppenwolf: America https://www.youtube.com/watch?v=eNp4LrWtz8M

 

 

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni

Loka auglýsingu