Þessi færsla er meira en 8 ára gömul.

Gleymum ekki gleðinni

Gleymum ekki gleðinni

Við Kjartan Yngvi Björnsson erum með grein á vísi og fréttablaðinu í dag. En þið getið líka lesið hana hér.

Gleymum ekki gleðinni

Lestur er algjör tímaþjófur. Við sem erum svo heppin eða óheppin að hafa alist upp í tiltölulega skjálausu umhverfi, með enga farsíma eða iPad-a, gátum fátt annað leitað en í bókina þegar foreldrarnir slökktu á sjónvarpinu og ráku okkur upp í rúm.

Reyndar er alveg öruggt að margir krakkar í dag vaka fram eftir við lestur á skemmtilegum ævintýrabókum, sumir eyða jafnvel verðmætum tíma sem ætti að fara í að leika úti með félögum, eða klára dæmin í skólabókunum, í að lesa einhverja vitleysu á borð við Andra Snæ eða Astrid Lindgren. Lestur, eins praktískur og hann er, hefur nefnilega alltaf verið afþreying, og það er auðveldast að læra að lesa þegar það er gaman. 

Það vekur hjá okkur ugg ef auka á vægi prófa á kostnað sköpunar í skólastarfi. Það er auðvitað alltaf hægt að troða krökkum í ákveðið mót og þjálfa nógu marga í að taka próf sem síðan hækka þá ákveðin meðaltöl, en lestur er meira en bara lesskilningur. 

Besta leiðin til að tryggja að krakkar haldi áfram að lesa, og auki þar með læsi sitt, hlýtur að vera að gefa þeim rými til að skemmta sér og skapa. Ef lestrargleðin grípur krakka er ansi snúið að koma í veg fyrir að þau lesi sér til yndisauka. Síðan má líta til efnahagslegra raka, ef það þarf endilega að byggja þetta á slíku. 

Veltið fyrir ykkur hvernig krakkar það eru sem verða að frumkvöðlum framtíðarinnar. Í Kína var áratugagömlu banni á vísindaskáldskap aflétt í von um að ungir lesendur yrðu að eldri frumkvöðlum. Ef þið viljið menningarleg rök veltið þá fyrir ykkur hvaðan rithöfundar framtíðarinnar eiga að koma og hvort mánaðarleg próftaka verði til að auka áhuga krakka á bókmenntum eða ekki. Ef þið viljið mannleg rök, veltið þá fyrir ykkur hvort rétt sé að ræna einhvern ánægjuna af lestri. 

Aukin próftaka mun ekki skila betri nemendum út í lífið þótt niðurstöður í Pisa-prófum kunni að lagast örlítið. Aukið listrænt starf í skólum, auk öflugri skólabókasafna og aukins sjálfstæðis kennara mun til lengri tíma litið skila meiri árangri. Gagnrýn og skapandi hugsun vegur þyngra en 0,02 hærra meðaltal á stöðluðum samanburðarlista. Lestur á undir högg að sækja. 

Við búum ekki í skjálausum heimi, og meira að segja þegar við vorum ungir menn var Gameboy og Nintendo þegar farið að éta upp dýrmætan lestrartíma. 

Við vorum heppnir að hafa góðar bækur nálægt okkur sem biðu þolinmóðar. Þótt framboð á afþreyingu sé meira enn nokkurn tíma áður þá eru þessar bækur og fleiri þarna enn þá. Það er mikilvægt að skrifa nýjar og fjölbreyttar íslenskar bækur fyrir ungt fólk,og að hvetja ungt fólk til að skrifta. Ekki til að svara prófspurningum heldur til ánægju.

Þeim sem finnst skemmtilegt að lesa og skrifa ná á endanum öllu hinu. Líka prófunum.


Svo aðeins til að bæta við

Að skrif á íslensku séu sem fjölbreytilegust og höfði til ungs fólks er okkur mikið hjartans mál. Enda höfum við oft talað um hvernig margt af því sem við vildum lesa þegar við vorum yngri var ekki til nema á ensku. Stundum er eina leiðin til þess að geta lesið það sem manni langar til að lesa á íslensku er að skrifa það sjálfur. Þess vegna stofnuðum við Furðusmiðjuna og erum með námskeið í skapandi skrifum fyrir upprennandi rithöfunda. Sjá hér.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni