Þessi færsla er meira en 5 ára gömul.

Ísland aftur á miðaldir - allt vegna 3ja orkupakkans

Ísland aftur á miðaldir - allt vegna 3ja orkupakkans

Páskarnir 2019 voru síðustu páskarnir sem Íslendingar gátu eldað sér sína páskasteik í friði og ró – og etið nægju sína. Nokkrum vikum síðar samþykkti nefnilega Alþingi 3ja orkupakka ESB og eftir það fór allt fjandans til.

Hingað til lands voru lagðir sæstrengir í alla fjórðunga og það voru vondir menn frá Brussel sem gerðu það – menn sem hefur dreymt í áratugi að komast í íslenskt rafmagn og mergsjúga íslenskt orkukerfi. Það hafði nefnilega aldrei verið gert áður.

Alþingi fékk ekki rönd við reist, hingað streymdu jakkafataklæddir með skjalatöskur til landsins, með bréf frá Jean Claude Juncker, upp á vasann, þess efnis að þeir mættu leggja sæstrengi eins og þeim sýndist og hirða alla grænu - vistvænu, íslensku orkuna.

Ísland varð eins og kolkrabbi, með anga út um allt, sem voru sæstrengirnir. Það var meira að segja lagður stengur til Grænlands og nú eru öll snjóhúsin á Grænlandi upplýst, með sjónvarpi og örbylgjuofni!

En Ísland var í myrkri; allt líf í íslensku samfélagi nánast lagðist af; landbúnaðurinn hrundi og enga mjólk var að fá, þar sem ekki var hægt að mjólka kýrnar, vegna vondra Brussel-manna!

Allir nýju rafbílarnir stóðu hreyfingarlausir, rúllustigarnir í Leifsstöð rúlluðu ekki og ekkert var hægt að kaupa í Duty-Free, engir posar virkuðu! Allir sem voru að flýja land vegna samþykktar 3ja orkupakkans fóru því tómhentir frá elsku eyjunni sinni.

Sjónvarp, útvarp, kvikmyndasýningar og skemmtanalíf lagðist af og endurnar á Tjörninni flúðu, vegna þess að ekki var hægt að kaupa brauð í búðunum, sem voru rafmagnslausar.

Þingfundir og fundir ríkisstjórnar voru haldnir við kertaljós. En gott ef að sumir ráðherrarnir urðu ekki bara ,,mýkri“ í útliti við kertaljósið!

Allt vegna 3ja orkupakkans!

Ísland varð kalt og napurt, það sökk aftur í ástand sem jafnaðist á við Móðuharðindin.

En fyrir andstæðinga hans var þetta draumur í dós, lífið varð aftur einfalt og þægilegt, fullkomlega sjálfstætt og fullkomlega fullvalda. Enginn skyldi aftur segja sjálfum Íslendingum hvað ætti að gera og hvað ekki. ÞEIR væri sínir eigin HERRAR! Framtíðin var BJÖRT!

Allt vegna 3ja orkupakkans!

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni