Óljóst hvenær og hvernig loforð um ókeypis strætó fyrir grunnskólabörn verður uppfyllt

Nýi meirihlutinn í Reykja­víkurborg lofaði því að hafa það á meðal sinna fyrstu verka að gera strætis­vagna­ferðir grunn­skólabarna ókeypis. Ekki liggur fyrir hvað það kostar Strætó, né hvort nágranna­sveitar­félögin ætla að taka þátt í því.

Alexandra Briem borgarfulltrúi Pírata og fulltrúi borgarinnar í stjórn Strætó.
Alex­andra Briem borg­ar­full­trúi Pírata og full­trúi borg­ar­innar í stjórn Strætó. Mynd: Bára Huld Beck

Í meirihluta­sáttmála Samfylkingar, Fram­sóknar, Pírata og Viðreisnar, sem kynntur var í byrjun júní, voru tiltekin 18 verkefni, sem nýr meirihluti í Reykja­víkurborg sagðist ætla að setja í forgang í upphafi nýs kjör­tímabils.

Eitt forgangs­málanna var að hætta að rukka börn á grunn­skóla fyrir ferðir með strætis­vögnum. „Við ætlum að hafa ókeypis í Strætó fyrir börn á grunnskólaaldri,“ sagði meirihlutinn í kaflanum Fyrstu breytingar í samstarfs­sáttmálanum, sem alls taldi 32 síður.

Nú eru skólar hafnir á ný eftir sumar­leyfi og margir reykvískir foreldrar hafa eflaust velt því fyrir sér hvort þeir þyrftu að fjárfesta í strætó­kortum fyrir grunn­skólabörn sín, eða hvort verið væri að leggja lokahönd á útfærslu þeirra fyrir­heita sem gefin voru í meirihluta­sáttmálanum fyrir tæpum þremur mánuðum.

Samkvæmt Alexöndru Briem, borgar­fulltrúa Pírata og fulltrúa borgarinnar í stjórn Strætó, er ekki enn ljóst hvernig eða hvenær loforð meirihlutans um að fella niður fargjöld grunn­skólabarna verður uppfyllt.

Hún segir þó að borgar­yfirvöld í Reykjavík ætli sér að láta gefin fyrirheit verða að veruleika, jafnvel þó að svo færi að önnur sveitar­félög höfuð­borgar­svæðisins myndu ekki vilja feta þennan veg.

„Í rauninni er það þannig að við eigum eftir að lenda því í stjórninni [hjá Strætó] hvernig við ætlum að taka á þessu. Það liggur fyrir að þetta myndi kosta eitthvað, og þá þurfum við annað hvort að sammælast um að gera það á Strætó-„leveli“ og öll sveitar­félögin að samþykkja að leggja til aukið fjármagn fyrir því. Ef það næst ekki samstaða um það þá þurfum við að skoða að gera þetta bara Reykjavíkumegin og það myndi þá bara gilda fyrir reykvísk börn,“ segir Alexandra í samtali við Kjarnann.

Kostnaðarmat liggur fyrir um miðjan september

Spurð um kostnað, tapaðar fargjalda­tekjur Strætó af því að veita öllum börnum á grunn­skólaaldri frítt í strætó, segist Alexandra ekki hafa þær tölur á reiðum höndum. Samkvæmt svari sem Jóhannes S. Rúnarsson framkvæmda­stjóri Strætó veitti Kjarnanum verður þetta mál tekið til umræðu á stjórnar­fundi Strætó þann 16. september og þá verður búið að kostnaðar­meta tilöguna.

Árskort í Strætó fyrir börn á aldrinum 12-17 ára kostar í dag 40 þúsund krónur hjá Strætó. Spurð út í mögulega endur­greiðslu slíkra korta, ef svo færi að einungis vikur eða mánuðir væru í að ókeypis yrði í strætó fyrir grunn­skólabörn, segir Alexandra að henni þætti persónu­lega sann­gjarnast ef árskort yrðu endur­greidd hlutfalls­lega miðað við þann tíma sem eftir er af árskortinu.

„En það er ekki komin nein lending á þetta samtal,“ segir Alexandra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár