Argentína semur við kröfuhafa

Stjórn­völd í Argentínu hafa náð samkomu­lagi við kröfuhafa ríkis­sjóðs landsins, einkum bandaríska vogunar­sjóði, vegna gjald­fallinna skulda ríkis­sjóðs Argentínu upp á samtals 4,65 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur 640 milljörðum króna. 

Þetta kemur fram á vef Wall Street Journal, en samkomu­lagið felst meðal annars í því að ríkis­sjóður Argentínu greiðir upp tiltekinn hluta af skuldum við kröfum, einkum sjóðs­stýringa­fyrirtækið Elliot Management, sem rekur vogunar­sjóði sem eiga viðskipti með skulda­bréf ríkja og kröfur í þrotabú fyrir­tækja.

Samkomu­lagið þykir marka tímamót fyrir Argentínu sem hefur verið einangrað efnahags­lega í nærri fimmtán vegna gjald­fallinna skulda ríkis­sjóðs, sem ekki hefur tekist að ná samkomu­lagi um, fyrr en nú.

Upphaf­lega komust skuldir Argentínu í uppnám vegna þess að ríkis­sjóður landsins greiddi ekki af þeim á réttum tíma. Samtals um 100 milljörðum Bandaríkja­dala. Frá þeim tíma hafa stjórn­völd í Argentínu átt í hörðum deilum við kröfuhafa, einkum vogunar­sjóði.

Samkomu­lagið hefur ekki verið nákvæmlega útlistað, en samkvæmt fyrstu fréttum felur það einkum í sér fyrir­fram­greiðslu til vogunar­sjóða sem síðan fella niður skuldir á móti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár