Burt með krumlurnar!

Þær hafa fengið nóg af káfi, klúryrðum, dónalegum síma­skilaboðum og boð um stefnumót: franskar blaða­konur sendu frá sér sameiginlega tilkynningu í vikunni, undir fyrir­sögninni: Burt með krumlurnar. Þær segjast of lengi þurft að þola kynferðis­lega áreitni af hálfu karla í frönskum stjórn­málum. Nú sé nóg komið. Undir þetta skrifa fjörtíu þekktustu blaða- og frétta­konur Frakk­lands, sem starfa hjá stærstu og þekktustu fjöl­miðlum landsins. Þær segjast stöðugt þurfa þola áreiti og niður­lægingu í starfi sínu og þá sérstak­lega frá karl­mönnum úr frönsku stjórnmála­stéttinni – og nefna nokkur dæmi því til sönnunar:

Þekktur franskur þingmaður mætir blaðakonu í andyri franska þingsins og ávarpar hana með þessum orðum og líkir henni um leið við vændis­konu:

„Ah, þú ert mætt á þitt horn, sé ég, til þess að höstla nýjan kúnna“

Önnur blaðakona talar um fund þar sem þingmaður strauk hendi sinni í gegnum hár hennar á meðan aðstoðar­maður ráðherra spurði hana hvort hún væri ekki örugglega sólbrún á ÖLLUM kroppnum eftir sumar­fríið.

Franskur stjórn­málamaður smellir mynd af sofandi blaðakonu um borð í flugvél, hallar sér svo að næsta manni og segir upphátt svo að viðstaddir heyra glöggt:

„Blaðamenn með stór brjóst eru bestir“

Mýmörg dæmi eins og þessi eru rakin. Á blaðamanna­fundum upplifa konur stöðugt niðrandi svör, augngotur og að lítið sé gert úr þeim; þær séu meðhöndlaðar og virtar eins og litlar, kjánalegar telpur.

Dólgurinn Dominique Strauss-Kahn


Það er susum ekk­ert nýtt að franskir stjórn­mála­menn séu karl­rembusvín, fjöl­þreifnir og klúrir. Hold­gerv­ingur þessa alls er auð­vitað skúrk­ur­inn Dominique Strauss-Kahn, fyrrum ráð­herra og for­stjóri Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins. Hann var alla tíð þekktur fyrir að áreita konur, en féll svo loks af stalli sínum vegna ákæru­mála um nauðgun og vænd­is­sölu. Dregin hafa verið fram í dags­ljósið gróf sam­skipti hans við blaða­konur, til að mynda til­raun til nauðg­unar 2002. Franska blaða­konan, Tristane Banon, greindi frá því og líkti honum við trylltan, stjórn­lausan apa á fengi­tíma. Hún lagði fram kæru á sínum tíma, en málið var látið falla niður vegna skorts á sönn­un­ar­gögnum.

Þegar réttar­höldin fóru fram vegna nauðgunar­máls DSK, varð mikil umræða um hin karlægu gildi í frönskum stjórn­málum; misréttindi og óásættanlega hegðun franska stjórn­málamanna gangvart konum; margir vonuðust til þess að ástandið myndi ef til vill breytast í kjölfar umræðunnar og betri tímar væru jafnvel framundan. Það er öðru nær segja þær konur sem fara nú fyrir átakinu. Enn sé allt við sama heygarðs­hornið. Ekkert hafi breyst.

Frönsk stjórnmál eru karllæg


Strauss-Kahn er ekki eini franski stjórn­mála­mað­ur­inn sem sak­aður hefur verið um kyn­ferð­is­lega áreitni og rudda­skap gagn­vart konum. Það vakti mikla athygli í júlí 2012 þegar lítið var gert úr hús­næð­is­mála­ráð­herra, Cécile Duflot, í sal franska þings­ins þegar þing­maður sak­aði hana um kvak og væl og benti sér­stak­lega á kjól hennar með fugla­mynstri, sem hún var klædd í þá stund­ina. Önnur svipuð ummæli urðu til­efni til þess að ráð­herra jafn­rétt­is­mála ávarp­aði þingið sér­stak­lega og húð­skamm­aði það fyrir dólgs­skap og karl­rembu.

Frönsku blaða­konurnar benda þó á að margt hafi breyst til batnaðar hin síðustu misseri. Unga kynslóðin og yngri þingmenn séu almennt til fyrir­myndar. En þegar völdin séu enn í höndum miðaldra, hvítra karla sé ekki von á góðu. Þeir munu engu breyta. Á franska þinginu eru konur miklum í minni­hluta eða um 27%. Í efri deild eða í lávarða­deildinni eru einungis um 22% konur. Hins vegar er kynja­hlutfallið jafnt í ríkis­stjórninni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár