Stefan Persson ríkasti Norðurlandabúinn - Á 28 prósent í H&M

Samkvæmt nýjum lista Forbes, yfir ríkasta fólk heims, er Svíinn Stefan Persson ríkasti Norður­landabúinn með eignir upp á 21,8 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 2.800 milljörðum króna.

Persson er númer 32 á listanum, en efstur er Bill Gates, stofnandi Microsoft, en eignir hans eru metnar á 75 milljarða Bandaríkja­dala.

Persson, sem er 68 ára gamall, er stjórnar­formaður tísku­risans H&M og á félag hans 28 prósent hlut í fyrir­tækinu. Faðir hans, Erling Persson, stofnaði fyritækið árið 1947 en það er sænskt að uppruna, en starfsemi þess er um allan heim. Samkvæmt vaxtar­áformum þess er stefnan að fjölga búðum um 10 prósent á ári, sem jafn­gildir því, þessa dagana, að opna eina nýja búð á degi hverjum, að því er fram kemur í umfjöllun Forbes.

Björgólfur Thor Björgólfsson er eini Íslend­ingurinn sem kemst á lista í umfjöllun Forbes, en hann er í sæti númer 1.121 með eignir upp á 1,6 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 208 milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár