Árni Oddur Þórðarson, sem hætti í gær sem forstjóri Marels eftir að hafa setið sem slíkur í áratug, hefur fengið samþykkta greiðslustöðvun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá honum. Þar segir hann að greiðslustöðvunin sé vegna „þeirrar réttaróvissu sem skapast hefur vegna aðgerða Arion banka, sem leyst hefur til sín hluta hlutabréfa minna í Eyri Invest, leiðandi fjárfestis í Marel, þrátt fyrir að ákvæðum langtímalánasamnings við bankann hafi verið fullnægt.“
Alls átti Árni Oddur 18,1 prósent í Eyri Invest þangað til nýverið og var næst stærsti eigandi félagsins, sem er stærsti hluthafi Marel með tæplega fjórðungshlut. Eini hluthafinn sem á stærri hlut í Eyri Invest er Þórður Magnússon, faðir Árna Odds, með 20,7 prósent.
Í tilkynningu til Kauphallar Íslands um viðskipti stjórnenda í Marel sem send var út í gær kom fram að 31. október síðastliðinn hafi Arion banki, sem lánveitandi og veðhafi, tilkynnt Árna Oddi „að bankinn hefði ákveðið að taka til sín 44.000.000 hluti í Eyri Invest hf., eða sem nemur 4,87 prósent hlutafjár í Eyri Invest hf., sem stóðu til tryggingar láni Árna Odds Þórðarsonar hjá bankanum.“
Eignatilfærslan á hlutabréfunum í Eyri fór fram á genginu 34,2 kr. á hlut. Í tilkynningunni segir að ágreiningur sé á milli Árna Odds og Arion banka um lögmæti og útfærslu á þessari ráðstöfun bankans. Eftir viðskiptin á Árni Oddur, beint og óbeint, 13,03 prósent hlutafjár í Eyri Invest hf.
Árni Oddur telur að aðgerð bankans sé hvorki í samræmi við samninga, lög né viðteknar venjur. „Fyrir liggur að eignir eru vel umfram skuldbindingar þrátt fyrir lækkun á markaðsverði hlutabréfa Marel að undanförnu. Ég hef nú fengið samþykkta greiðslustöðvun til að fá tíma og rúm til að vinna að farsælli og sanngjarnri lausn.“
Markaðsvirðið lækkaði mikið í dag
Rekstur Marel hefur verið undir væntingum á síðustu árum og markaðsvirði félagsins lækkaði um 43,9 prósent á árinu 2022, þegar það fór úr 663,5 milljörðum króna í tæplega 367 milljarða króna. Markaðsvirðið hefur lækkað um 23,4 prósent það sem af er árinu 2023 og var 264,5 milljarðar króna við lok viðskipta í dag eftir 6,4 prósent lækkun frá því að viðskipti hófust í morgun. Það þýðir að markaðsvirðið lækkaði um rúmlega 18 milljarða króna í dag og hefur alls lækkað um 399 milljarða króna frá byrjun árs í fyrra.
Árni Oddur hefur verið einn hæst launaði forstjóri landsins undanfarin ár. Laun hans voru um 11,2 milljónir króna á mánuði í fyrra að meðaltali og lækkuðu um 14 prósent milli ára. Þar munar mestu um 30 milljóna króna bónusgreiðslu sem hann fékk á árinu 2021, en Árni Oddur fékk enga slíka í fyrra. Til viðbótar við þessi laun þá vann Árni Oddur sér inn umtalsverða kauprétti sem metnir voru á 426 þúsund evrur, um 64,3 milljónir króna, á síðasta ári.
Neikvætt eigið fé
Eftir veðkallið á Árni Oddur um 13,2 prósent hlut í Eyri Invest. Eignarhlutir hans í félaginu hafa verið í hans eigin nafni og í einkahlutafélagi sem ber nafn hans, Árni Oddur Þórðarson ehf. Það félag hélt á 1,3 prósent hlut í Eyri Invest í lok síðasta árs en virði þess hlutar var bókfært á um 703 milljónir króna. Það hafði þá rýrnað um rúmlega einn milljarð króna á einu ári. Miðað við lækkun á virði bréfa í Marel það sem af er þessu ári má gera ráð fyrir að virði þess hlutar sé nú um hálfur milljarður króna.
Í síðasta birta ársreikningi félagsins segir að skuld þess við lánastofnun, sem var upp á 936 milljónir króna, væri í íslenskum krónum með einni afborgun höfuðstóls á árinu 2025. „Vextir eru breytilegir og greiðast árlega. Eigandi félagsins hefur sett tryggingar fyrir láninu með handveði í eignarhlutum í öðru félagi og sjáfsskuldarábyrgð.“
Fall á virði Marels í fyrra gerði það að verkum að eigið fé félagsins fór frá því að vera jákvætt um 529 milljónir króna í lok árs 2021 í að vera neikvætt um 593 milljónir króna um síðustu áramót. Sú staða hefur versnað á þessu ári.
Árni Oddur sagði í tilkynningu sem hann sendi frá sér í gær að Arion banki hafi gripið til veðkalls, og leyst til sín eignarhluti sem eru umfram þá sem vistaðir voru inni í ofangreindu félagi, þrátt fyrir að ákvæðum langtímalánasamnings hans við bankann hafi verið fullnægt. „Ég hef átt í viðræðum við bankann síðustu vikur, sem ég taldi vera í fullu trausti, og gekk svo langt að leggja allar mínar eigur undir til að tryggja að veðhlutfall lánsins næmi tvöfaldri fjárhæð í lánasamningi. Á síðustu stundu bætti bankinn við óaðgengilegum kröfum umfram skilmála lánasamnings, hafnaði innágreiðslu upp á 335 milljónir króna og kaus að leysa bréfin til sín frekar en að efna lánasamninginn. Bréfin leysti bankinn til sín á undirliggjandi virði eigna skv. lánasamningi 31.október, gjaldfelldi lánið en hefur enn ekki skilað umframvirði eigna.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir (1)