Peston: Varnarviðbrögð Kínverja geta grafið undan ríkjum

Robert Peston, viðskipta­ritstjóri breska ríkis­útvarpsins BBC, segir í nýjum pistli að staða efnahags­mála í Kína sé viðkvæm og mörg nýmarkaðs­ríki sem eigi mikið undir viðskiptum við Kína - sem samtals standi undir um helmingi heims­fram­leiðslunnar á ári - geti farið illa út úr varnar­viðbrögðum Kínverja, meðal annars að veikja gjald­miðilinn, júan, og lækka stýri­vexti. Markmiðið með þessum aðgerðum er að örva kínverska hagkerfið, einkum útflutnings­hlið þess.

Peston segir í pistli sínum að seðla­bankastjóri Indlands, Raghuram Rajan, hafi talað um það í viðtali við BBC fyrir skömmu að margir reiði sig um of á ákvarðanir seðla­banka. Þannig sé staða í heiminum um þessar mundir, ekki síst í Kína.

Ef grunn­undir­stöðurnar í hagkerfinu eru veikar þá geti farið illa, segir Peston en margir fjár­festar og sérfræðingar hafa að undan­förnu sagt veikleika hafa berast í Kína að undan­förnu.

Willem Buiter, aðal­hagfræðingur Citigroup, er einn þeirra en hann fullyrti á fundi í New York á dögunum að hagtölur stjórn­valda í Kína væru falskar og ekki samanburðar­hæfar við önnur þróuð ríki. Hagvöxtur í landinu yrði ekki um sjö prósent, eins og spár stjórn­valda gerðu ráð fyrir, heldur nær 4,5 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár