Willem Buiter: „Falskar“ hagtölur í Kína eru áhyggjuefni

Willem Buiter, aðal­hagfræðingur Citigroup, segir að kínverska hagkerfið sé á leið inn í kreppu og stjórn­völd í landinu séu of sein að bregðast við veikleika­merkjum. Þá séu opinberar hagtölur í landinu óáreiðanlegar og útlitið fyrir hagvöxt sé ekki eins og af er látið. Spár Kínverja geri ráð fyrir sjö prósent hagvexti á þessu ári en reyndin sé sú að hann verði þá um 4,5 prósent, miðað hefð­bundna mæli­kvarða í öðrum löndum.

Þetta kom fram á fundi í New York í gær, þar sem Buiter ræddi um stöðu mála í Kína við sérfræðinga í alþjóða­stjórnmálum og í fjármála­geiranum. Buiter er Íslendingum kunnur, en hann sagði meðal annars á fundi í Hörpu, sem Seðla­banki Íslands, stjórn­völd og Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn stóðu fyrir, í október 2011, að hann hefði hvergi séð „viðlíka múgheimsku“ og var á Íslandi fyrir hrun fjármála­kerfisins.

Buiter, sem um tíma átti sæti í ráðgjafa­ráði Seðla­banka Bretlands, Englands­banka (Bank Of England), segir að vanda­málin í Kína séu rétt að byrja, og að greiningar á hagtölum bentu til þess að kínversk stjórn­völdu væru ekki að koma fram með rétt mat á stöðu mála. Ellefu hagfræðingar, sem greindu stöðu mála í Kína, komust að því að hagvöxtur í landinu á fyrri hluta ársins hefði ekki verið rúmlega sjö prósent eins og opinber­lega kom fram heldur 6,3 prósent að hámarki. Í jafn risavöxnu hagkerfi og Kína þá munar mikið um hvert prósentu­stig í útreikningum sem þessum.

Buiter sagði enn fremur að inngrip stjórn­valda í Kína, meðal annars til þess að halda uppi verði á hluta­bréfum, væru ekki trúverðug og að búast mætti við frekari vanda­málum í landinu á næstu misserum, að því er segir í umfjöllun Bloomberg.


Citi economist Buiter: China sliding into recession ... likely drag global economy with it http://t.co/NYmFG8BEfR


— ForexLive (@ForexLive) August 28, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár