Lækjartorg mun taka miklum breytingum

Það er einróma álit dómnefndar að tillagan sem vann hönnunar­samkeppni um Lækjar­torg „uppfylli flestar áherslur samkeppnis­lýsingarinnar og gefi torginu og aðliggjandi gatna­rýmum nýja vídd og nýtt og spennandi hlutverk í hjarta borgarinnar“.

Svona mun nýtt Lækjartorg líta út.
Svona mun nýtt Lækj­ar­torg líta út. Mynd: Reykjavíkurborg

Tillagan Borgara­lind eftir Sp(r)int Studio og Karrens en Brands, bar sigur úr býtum í hönnunar­samkeppni um Lækjar­torg og aðliggjandi gatnarými. Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra veitti verðlauna­höfum viðurkenningar ásamt Degi B. Eggerts­syni borgar­stjóra á fundi í Ráðhúsi Reykja­víkur í morgun.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykja­víkurborg í dag.

Reykja­víkurborg og Félag íslenskra landslags­arkitekta (FÍLA) efndu til hönnunar­samkeppninnar árið 2021 og var auglýst eftir tillögum sem hefðu rými fyrir fólk að leiðar­ljósi í hönnun. Samkeppnin var hönnunar­samkeppni með forvali og var í tveimur þrepum. Markmið samkeppninnar var að fá fram frjóar og áhuga­verðar hugmyndir um hönnun Lækjar­torgs og nærliggjandi gatna. Ellefu umsóknir bárust í forvali og voru þrjár tillögur valdar til þátttöku á síðara þrepi.

Samkeppnis­svæðið náði yfir Lækjar­torg, Lækjar­götu frá Hverfis­götu að Austur­stræti, Austur­stræti frá Lækjar­götu að Ingólfs­torgi og Banka­stræti frá Þing­holtsstræti að Austur­stræti. Stefnt er að því að semja við höfunda tillagna um endanlega útfærslu forhönnunar. Nýtt deili­skipulag, ef þess gerist þörf, verður unnið í samræmi við vinnings­tillöguna.

Dómnefnd á seinna þrepi skipuðu Björn Axelsson, skipulags­fulltrúi, sem var formaður dómnefndar, Hjálmar Sveinsson borgar­fulltrúi, Orri Steinarsson, arkitekt og skipulags­fræðingur, Hlín Sverris­dóttir, landslags­arkitekt hjá FÍLA og skipulags­fræðingur SFFÍ og Heba Hertervig, arkitekt hjá AÍ.

Borgarlínustöð verður á Lækjartorgi

Í tilkynningunni segir að það hafi verið einróma álit dómnefndar að tillagan „uppfylli flestar áherslur samkeppnis­lýsingarinnar og gefi torginu og aðliggjandi gatna­rýmum nýja vídd og nýtt og spennandi hlutverk í hjarta borgarinnar“.

Tillagan þykir vera allt í senn „djörf, hlýleg og rómantísk“. „Hún ber með sér hugmynda­auðgi, sterka fagur­fræðilega sýn, og næmni fyrir umhverfi og staðar­anda og lyftir Lækjar­torgi upp á spennandi og áhuga­verðan hátt. Tillagan nær að flétta saman nútímann og söguna samhliða því að styrkja hlutverk Lækjar­torgs sem vettvang fjöl­breyttra athafna og mannlífs. Sveigjanleiki, leikgleði og vel útfærð rými á torginu fela í sér ótal möguleika og tækifæri fyrir marg­víslega viðburða á öllum árstímum,“ segir í umsögn dómnefndar.

Enn fremur kemur fram í tilkynningunni að Borgarlínustöð verði á Lækjar­torgi og ávarpaði dómnefndin þetta í áliti sínu. „Heildar­yfirbragð tillög­unnar nær á sann­færandi hátt að tengja saman Stjórnar­ráðið, Lækjar­torg og Banka­stræti sem þjónað er af meginæð Borgar­línu sem kemur til með að liggja eftir Lækjar­götu.“ Þar segir enn fremur að gróðri og dvalar­svæðum sé fléttað þarna saman á áhuga­verðan hátt. Áhersla var lögð í samkeppninni á góðar tengingar og útfærslur sem styrkja samspil Lækjar­torgs við fyrir­hugaða Borgarlínustöð og aðstöðu henni tengdri.

Á endanum fjallar þetta um fólkið

Karl Kvaran arkitekt kynnti tillöguna fyrir hönd teymisins eftir að úrslitin voru tilkynnt. Hann sagði miðbæinn marg­brotinn og að spennandi hefði verið að vinna með þetta svæði. Teymið hefði unnið mikið með hugtakið samkoma en Lækjar­torg hefur hýst útifundi og fleiri viðburði í gegnum tíðina og verið miðstöð samgangna. Lögð var áhersla á að þetta héldi sér en hann sagði að þarna yrði líka hægt að vera með markaði svo eitthvað væri nefnt.

Nafnið Borgara­lind vísar til mann­lífsins. „Á endanum fjallar þetta um fólkið og það er fólkið sem gerir borgina,“ sagði hann en lindar­hluti nafnsins vísar til lækjarins og leiðir enn fremur hugann að því skemmtilega mannlífi sem myndast í kringum heitu pottana í borginni.

Teymið kallaði þetta stóra púsluspilið og notuðu tækifærið í tillög­unni til að tengja miðbæinn saman. Karl sagði þetta svæði vera lykilrými í Reykjavík og inngang Kvosarinnar.

„Almannarýmið hefur átt undir högg að sækja í borgum víða um heim“

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra ávarpaði fundinn eftir kynninguna. „Almanna­rýmið er eitt mikil­vægasta verkefnið sem við eigum saman. Þar komum við öll saman alveg óháð því hver við erum og hvaðan við erum að koma. Þetta er rými þar sem við mætumst og kynnumst öðru fólki. Almanna­rýmið hefur átt undir högg að sækja í borgum víða um heim. Þess vegna er svo mikilvægt að við ræktum almanna­rýmið og tryggjum nánd þess við stofnanir samfélagsins.“

„Ég stend hér sem nágranni Lækjar­torgs,“ sagði hún og bætti því við að hún hlakkaði mjög til að sjá þróun þessarar hugmyndar þar sem unnið væri með að umhverfið væri lífvænlegt, að það væri mannlegt og þarna gæti fólki liðið vel en þarna gæti fólk líka komið saman og sagt sína skoðun.

Púslið sem vantaði

Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri óskaði verðlauna­höfum til hamingju með glæsilega tillögu. Hann þakkaði öllum hlut­aðeigandi fyrir vinnu sína og sömuleiðis forsætis­ráðherra fyrir samstarfið.

„Mér fannst svo snjallt að stilla þessu upp sem púsli en þetta púsl hefur einfald­lega vantað,“ sagði hann. „Þarna kemur svo margt saman. Mér finnst þessi magnaða umbreyting borgarinnar vera líka tákn fyrir nýja tíma.“

„Þegar kemur að umbreytingu borgarinnar, grænum áherslum til framtíðar, kolefnis­hlutlausu samfélagi og því að gefa fólki raun­verulegt val í samgöngu­málum, virkum samgöngu­mátum, þá stöndum við ekki bara saman í dag heldur til framtíðar,“ sagði hann um samstarf ríkis og borgar og sagði þetta vera langtíma­verkefni sem kallaði á úthald, staðfestu og stefnu­festu.

Dagur telur að verkefnið rammi mikið inn af þeim þáttum sem skipta máli og nefndi að það væri verið að lyfta mann­lífinu og hinu græna, alls konar samgöngu­mátum, staðar­anda og sögunni, bjartsýni og fram­tíðartrú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár