Í Svíþjóð mega gul hús bara vera í einum gulum lit og hana nú!

Stundum koma upp mál sem fá okkur til að hugsa um þjóðar­sálina – svona að því gefnu að eitthvað sé til sem heiti þjóðarsál. Við heyrum fréttir og fáum staðfest að Bretar drekki bara te á milli þess sem þeir horfi á fótbolta, Danir skoli smörrebröd niður með einum köldum og að Þjóð­verjar hafi neitað að vera á þessum lista því umsókn var ekki skilað í þríriti. Og svo eru það Svíarnir.

Stundum verðum við Íslendingar pirraðir á því að útlendingar spyrji okkur hvort við þekkjum Björk og trúum á álfa. Ætli Svíum líði ekki eins þegar sagt er að þeir séu hávaxnir og ljós­hærðir og hafi skráðar og óskráðar reglur um allt. Síðustu viku hafa Svíar einmitt velt því fyrir sér hvort þjóð­félagið hafi gengið of langt þegar kemur að reglum. Að þessu sinni er ekki spurt hvenær maður drepi mann – heldur hvenær gult hús sé gult.

Ekki hættulaust að mála hús


Bærinn Mjölby liggur nokkurn veg­inn miðja vegu milli Linköp­ing og Jönk­öp­ing í Gaut­landi eystra. Á íslensku mætti kalla hann Myllubæ enda nafnið dregið af gömlu sænsku orði yfir myllur. Íbúarnir eru um tólf þús­und í þessu frekar frið­sama bæj­ar­fé­lagi við Svartána, en flestir Svíar þekkja hann eflaust bara vegna lest­ar­stöðv­ar­innar sem tengir saman fjöl­farnar leiðir, meðal ann­ars milli Stokk­hólms og Gauta­borgar. Í raun er ekki margt um Myllubæ að segja. Listinn yfir þekkta Myllu­bæ­inga er stuttur og ekki hafa íþróttaliðin gert neinar rósir. Þó ber að nefna að bæj­ar­kirkjan þykir nokkuð snotur en við hana má meðal ann­ars finna klaust­ur­rústir frá tólftu öld. Og hér hefst kannski loks­ins hin eig­in­lega saga.

Nú skal tekið fram að húsin í kring eru hvorki gul né græn og lík­lega er hægt að halda því fram að það breyti heild­ar­mynd hverf­is­ins.

Fyrir nokkru síðan ákvað myndlistar­maðurinn Bernth Uhno að flytja í Myllubæ. Hann keypti hús sem hafði staðið autt frá árinu 1981 og gerði það upp. Nú skal tekið fram að í Svíþjóð leggur fólk mikið upp úr því að hús séu fallega máluð. Stundum eru heilu hverfin í sama lit en oftast er blandað saman gulum, grænum, rauðum og jafnvel bleikum húsum.

Fátt gefur lífinu jafn mikinn lit og vel máluð hús. Bæjar­yfirvöldum í Myllubæ fannst húsið hans Bernth hins vegar aðeins of mikið af því góða. Myndlistar­maðurinn ákvað nefnilega að beita kunnáttu sinni til að ná fram litbrigðum á húsinu, veggirnir eru því eilítið ljós­gulari neðst en renna út í appelsínu­gult eftir því sem ofar dregur. Nú skal tekið fram að húsin í kring eru hvorki gul né græn og líklega er hægt að halda því fram að það breyti heildar­mynd hverfisins. En rökin sem stjórn­mála­mennirnir notuðu þykja heldur hlægileg.

Lista­maðurinn Bernth Uhno og umdeilda gula húsið hans í Myllubæ.

Svona litasamsetning er ekki sænsk


Anders Steen er bæj­ar­full­trúi fyrir Mið­flokk­inn og for­maður í bygg­ing­ar­nefnd bæj­ar­ins. Hann sendi Bernth bréf þar sem þess var kraf­ist að húsið yrði málað upp á nýtt. Í við­tölum við fjöl­miðla var hann spurður hvers vegna þessi ákvörðun hafði verið tekin og svarið vakti óneit­an­lega athygli. „Svona lita­sam­setn­ing er ekki sænsk“, sagði hann í við­tali við sænska rík­is­sjón­varpið. Þegar hann var beð­inn um að útskýra nánar hvað hann ætti við sagði hann að í Svíþjóð héldi fólk sig við einn lit. Það væri nefni­lega þannig, sagði Steen, að sænski guli lit­ur­inn væri ein­fald­lega sami guli litur yfir allan flöt­inn.

Listamaðurinn Bernth Uhno og umdeilda gula húsið hans í Myllubæ.
Lista­mað­ur­inn Bernth Uhno og umdeilda gula húsið hans í Myllubæ.
Samtök hús­eig­enda í Svíþjóð mót­mæla ákvörð­un­inni harð­lega og telja að í fyrsta lagi sé sektin allt of há og að í öðru lagi hafi bæj­ar­yf­ir­völd tekið sér allt of mikil völd.

Þrátt fyrir nótmæli heldur bæjar­stjórnin sig við fyrri ákvörðun og krefst þess að Bernth máli húsið aftur. Hann hefur fram á haustið til að bregðast við en frá og með september þarf hann að borga sekt ef húsið er enn í sama lit. Já, eða öllu heldur – ekki í einum lit. Sektin er engin smáupphæð eða 22.500 sænskar á mánuði sem eru um 350 þúsund íslenskar. Samtök húseigenda í Svíþjóð mótmæla ákvörðuninni harðlega og telja að í fyrsta lagi sé sektin allt of há og að í öðru lagi hafi bæjar­yfirvöld tekið sér allt of mikil völd.

Almenningur virðist styðja Bernth


Frá því á mánu­dag þegar SVT birti fyrstu frétt­ina um málið hefur stuðn­ingur við Bernth vaxið dag frá degi. Ríflega tíu þús­und hafa líkað við stuðn­ings­síðu á Facebook og tæp­lega 5000 hafa skrifað undir áskorun til bæj­ar­yf­ir­valda. Þá var fyrstu frétt SVT um málið deilt tæp­lega 40 þús­und sinnum á Facebook. Í kjöl­farið hafa bæj­ar­yf­ir­völd reyndar breytt rök­stuðn­ingi sínum og halda því nú fram að gula húsið hafi nei­kvæð áhrif á menn­ing­arminjar í bænum. Standi maður við klaust­ur­rúst­irnar umræddu frá 12. öld sé guli lit­ur­inn á hús­inu nefni­lega allt of áber­andi. En eins og frétta­kona SVT benti á í þess­ari frétt er nóg að snúa sér í hina átt­ina við rúst­irnar til að sjá bens­ín­stöð í gulum lit og því ekki kýr­skýrt hvað það er við hús Bernths sem truflar svo mikið.

Þetta er reyndar langt í frá fyrsta mál sinnar tegundar í Svíþjóð. Dæmi eru um blá, fjólublá, gul og bleik hús sem stjórn­málamenn og byggingar­fulltrúar gera athuga­semdir við. Og viðbrögðin eru nánast alltaf þau sömu – nefnilega hvort þetta fólk hafi ekkert betra við tímann að gera.

Þegar þetta er ritað er alls óvíst hvernig sögunni lýkur. Hvort Bernth láti undan og endurmáli húsið, eða hvort stuðningur almennings fái bæjar­yfirvöld til að skipta um skoðun. Leiðara­höfundur Aftonbladet bendir á að besta leiðin til að leysa málið sé að muna eftir því í næstu kosningum. Þangað til hlæjum við hin að ljóshærðu og hávöxnu Svíunum sem hafa skráðar og óskráðar reglur um allt. Það er nefnilega alveg ótrúlegt hvað Svíar eru duglegir að fara eftir reglum – nema auðvitað þegar þeir gera það ekki.

Hér má sjá hvernig hægt væri að leysa málið með því að mála húsið í erki­sænskum litum.

Hér má sjá hvernig hægt væri að leysa málið með því að mála húsið í erkisænskum litum.
Hér má sjá hvernig hægt væri að leysa málið með því að mála húsið í erkisænskum litum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár