SkjárEinn opinn frá deginum í dag

Sjónvarps­stöðin SkjárEinn er í opinni línulegri dagskrá frá og með deginum í dag. Stöðin verður hins vegar í áskrift sem gagnvirk efnis­veita. Með þessu ætlar Síminn að herja á nútíma­sjónvarps­markað.

„Fyrir­myndin er fengin úr tónlistar- og leikja­heiminum á netinu. Við erum algjör­lega sannfærð um að það reynist vel á sjónvarps­markaði og finnum fyrir miklum áhuga,“ segir Pálmi Guðmundsson sjónvarps­stjóri í tilkynningu um breytingarnar. Uppskiptingin með þessum hætti er byggð á íslensku hugviti og var þróuð hjá Símanum.

SkjárEinn fór í loftið árið 1999 og var í opinni dagskrá allt til ársins 2009, eða í tíu ár. Frá þeim tíma hefur stöðin, og tengdar stöðvar Skjásins, verið áskriftar­stöðvar, þangað til í dag. Tilkynnt var um þessar breytingar um miðjan september, en miklar breytingar hafa átt sér stað hjá SkjáEinum á árinu, en sjónvarps­stöðin og annað sem heyrði undir Skjáinn er nú rekið beint undir hatti Símans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár