Eyrir Sprotar lýkur fyrsta áfanga fjármögnunar

Sprota og vaxta­sjóður Eyrir Invest, Eyrir Sprota slhf., hefur lokið fyrsta áfanga fjár­mögn­unar með þátt­töku „öfl­ugra“ fjár­festa, eins og segir í frétta­til­kynn­ingu frá Arion banka. Þar segir að Eyrir Sprotar hafi nú þegar fjár­fest í nokkrum nýsköp­un­ar­verk­efnum og fleiri verk­efni til við­bótar séu til skoð­unar hjá sjóðnum. Að loknum fyrsta áfanga fjár­mögn­unar er stærð Eyris Sprota um 2,5 millj­arðar króna.

Eyrir Sprotar er rek­inn af Eyrir Invest í sam­starfi við Arion banka, en Eyrir og Arion banki eru stærstu hlut­hafar sjóðs­ins. Aðrir fjár­festar eru líf­eyr­is­sjóðir og fag­fjár­festar. Sjóð­ur­inn á í við­ræðum við nokkra áhuga­sama fjár­festa um þátt­töku og er gert ráð fyrir að seinn hluta fjár­mögn­unar verði lokað fljót­lega, að því er fram kemur í fyrr­greindri frétta­til­kynn­ingu.

Í fjár­fest­inga­ráði Eyris Sprota eiga sæti Þórður Magn­ús­son, sem jafn­framt er for­maður ráðs­ins, Hilmar Bragi Janusson, Kristín Guð­munds­dóttir og Magnús Ingi Ósk­ars­son. Hilmar er for­seti Verk­fræði- og nátt­úru­vís­inda­sviðs Háskóla Íslands og fyrrum fram­kvæmda­stjóri vöru­þró­unar og rann­sókn­ar­starfs hjá Össuri hf.. Kristín starf­aði áður sem for­stjóri og fjár­mála­stjóri hjá Skiptum hf. og sem fjár­mála­stjóri Granda hf.. Magnús Ingi Ósk­ars­son var einn stofn­enda Calidris sem var selt til hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Sabre Airline Solutions árið 2010. Þórður Magn­ús­son er stjórn­ar­for­maður Eyrir Invest hf. og hefur komið að upp­bygg­ingu fjöl­margra sprota­fyr­ir­tækja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár