Nýtt fríblað kemur út í fyrsta sinn á morgun

Birtingur og Kjarninn gefa í samstarfi út fríblaðið Mannlíf í fyrsta sinn á morgun, fimmtudaginn 12. október. Blaðinu verður dreift í 80 þúsund eintökum á höfuð­borgar­svæðinu.

Mannlíf, nýtt fríblað, kemur út í fyrsta sinn á morgun. Blaðinu verður dreift á höfuð­borgar­svæðinu í 80 þúsund eintökum. Það er samstarfs­verkefni útgáfu­félagsins Birtings og Kjarnans miðla.

Í Mannlífi er lagt mikið upp úr gæðum efnis úr mörgum áttum. Ritstjórn Kjarnans sér um vinnslu frétta, frétta­skýringa, úttekta, skoðana­greina og frétta­tengdra viðtala á meðan að ritstjórnir Gest­gjafans, Hús og híbýla og Vikunnar vinna áhugavert og skemmtilegt efni inn í aftari hluta blaðsins. Efnistök eru því afar fjöl­breytt. Í Mannlífi er að finna lífstíls­tengt efni um heimili, hönnun, ferðalög, mat og drykk í bland við vandaðar frétta­skýringar og viðtöl við áhugavert fólk.

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, segir að samstarfs­verkefnið gefi Kjarnanum frábært tækifæri til að koma sínu efni til nýrra markhópa. „Kjarninn hefur skilgreint sig sem efnis­fram­leiðanda um nokkurra ára skeið sem nýtir sér þær leiðir sem í boði eru til að koma efni til lesenda og neytenda. Við erum mjög spennt að sjá hver viðbrögðin verða fyrir þessari nýju viðbót á fjölmiðla­markaðinn.“

Gunnlaugur Árnason, stjórnar­formaður Birtings, segir að fyrir­tækið sérhæfi sig í fram­leiðslu á hágæða­efni um heimili, hönnun, ferðalög, mat og drykk. „Framleiðslu­geta Birtings er ekki fullnýtt og það er svigrúm til þess að auka hana og finna því efni nýjan farveg. Í núverandi mynd sinnir Birtingur ekki frétta­flutningi og þess vegna er samstarf við Kjarnann augljóst. Fríblaðið Mannlíf er samstarfs­verkefni miðlanna, þar sem hver miðill sérhæfir sig í því sem hann gerir best, Við munum áfram leita hagkvæmra leiða til þess að þjónusta áskrifendur og lesendur tímarita Birtings enn frekar, jafnframt því að dreifa efni okkar til stærri hóps. Samstarfið við Kjarnann er fyrsta skrefið á þeirri vegferð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár