Atvinnuleysi minnkar og verðbólga eykst á evrusvæðinu

Atvinnu­leysi á evru­svæðinu minnkaði á milli mánaða og hefur ekki verið minna síðan í apríl 2012, samkvæmt nýjum tölum frá Eurostat, hagstofu Evrópu­sambandsins. Það mældist 11,2 prósent í janúar, sem þýðir að rúmlega átján milljónir manna eru án vinnu á svæðinu, 140 þúsundum færri en í desember.

Áfram er minnst atvinnu­leysi í Þýska­landi, 4,7 prósent, og í Austur­ríki, 4,8 prósent. Mest er atvinnu­leysið í Grikk­landi, 25,8 prósent, og á Spáni, 23,4 prósent. Atvinnu­leysi meðal ungs fólks er áfram hátt, en 22,9 prósenta atvinnu­leysi er á evru­svæðinu meðal fólks undir 25 ára aldri.

Innan alls Evrópu­sambandsins mælist atvinnu­leysi nú 9,8 prósent, en það var 9,9 prósent í desember síðastliðnum. 23,8 milljónir manna eru án vinnu í ESB, þar af 4,8 milljónir fólks undir 25 ára.

Euro area unemployment rate at 11.2% and EU at 9.8% in January 2015 #Eurostat http://t.co/FIYzl8vL2A pic.twitter.com/QLwM9ZpnId

— EU_Eurostat (@EU_Eurostat) March 2, 2015

Verðbólga eykst á ársgrundvelli

Ársverð­bólga á evru­svæðinu var neikvæð um 0,3 prósent í febrúar samkvæmt nýjum bráðabirgða­tölum frá Eurostat. Verð­hjöðnun mældist -0,6 prósent í janúar og hefur því verðbólga aukist milli mánaða. Verð á þjónustu hækkar um 1,1 prósent og verð á mat, áfengi og tóbaki um 0,5 prósent. Lækkandi orkuverð hefur áfram mest áhrif á verðbólgu­tölurnar, en orkuverð lækkaði um 7,9 prósent, miðað við 9,3 prósent í janúar.

Euro area annual inflation up to -0.3% in February 2015 - flash estimate from #Eurostat http://t.co/4S5qu0NtIj pic.twitter.com/c1dsimQNlh — EU_Eurostat (@EU_Eurostat) March 2, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár