Evrópusambandið óskar eftir hjálp frá Sameinuðu þjóðunum

Evrópu­sambandið hefur formlega óskað eftir hjálp frá Sameinuðu þjóðunum vegna flótta­manna og smygli á fólki frá Mið-Austur­löndum og Afríku­ríkjum yfir Miðjarðar­hafið. Federica Mogherini, sem er í forsvari fyrir utan­ríkismál Evrópu­sambandsins, sagði öryggis­ráði Sameinuðu þjóðanna að Evrópu­sambandið þyrfti að reiða sig á stuðning frá Sameinuðu þjóðunum til þess að geta bjargað manns­lífum.

Smygl á fólki, í gegnum skipulagt mansal, hefur færst í aukana á undan­förnum árum og hafa slys, þar sem bátum hvolfir á Miðjarðar­hafinu, ver tíð og mörg hver mannskæð.

Meira en 1.800 manns hafa látið lífið í slysum á þessu ári, sem er tuttugu­falt meira en á sama tímabili í fyrra.

Samkvæmt umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC, eru margir þeirra sem reyna að komast yfir Miðjarðar­hafið, ýmist sem flótta­menn eða sendir nauðugir í gegnum skipulagt smygl, frá stríðs­hrjáðum svðum í Afríku, þar á meðal Nígeríu og Sómalíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár