Sigur í „baráttunni um Internetið“ - netið almannaþjónusta

Breið­bands internet hefur nú verið skilgreint sem almanna­þjónusta (public utility) eftir að nefnd bandaríska ríkisins, sem úrskurðar um álitamál sem snúa meðal annars að samskiptum (FCC), komst að þeirri niður­stöðu í dag með úrskurði. Samkvæmt fréttum New York Times þykir þetta mikill sigur fyrir þá sem hafa barist fyrir jöfnum rétti almennings á internetinu, og því að fjarskipta­fyrirtæki komist ekki í þá stöðu að stýra internetinu með einokun, en það er fyrir löngu orðið mikil­vægur og sjálf­sagður hluti af daglegu lífi fólks.

Kjarninn fjallaði ítarlega um þessi álitamál í frétta­skýringu 6. september í fyrra, en miklir hagsmunir voru undir í þessu máli, ekki síst fyrir bandaríska fjarskipta­fyrirtæki.

Hraðbrautir?


Baráttan um inter­netið snýst um vilja stærstu fjar­skipta­fyr­ir­tækja Banda­ríkj­anna: Comcast, Verizon, Time Warner Cable og At&t, til að hagn­ast á nýjan hátt á inter­net­inu. Úrskurð­ur­inn í dag kemur í veg fyrir að fyr­ir­tækin geti náð vilja sínum fram, í það minnsta í þetta skiptið.

Hugmyndir fyrir­tækjanna ganga út á að láta vefsíður greiða sérstök gjöld til sín til að fá aðgang að svokölluðum „hrað­brautum“, sem tryggja hraða upphleðslu á síðunum og betri streymi á efni þeirra. Þær vefsíður sem annað hvort vilja ekki eða geta ekki greitt fjarskiptarisunum yrði refsað með því að hægja á upphleðslu og streymi á síðunum, jafnvel svo mikið að þær muni hreinlega ekki virka.

Barist fyrir net-hlutleysi


Áformin hafa vakið athygli og reiði í Banda­ríkj­unum og hafa fyr­ir­tæki og einnig gras­rót­ar­hópar reynt að afla hug­mynd­inni um inter­netið sem almanna­þjón­ustu fylgis. Hug­myndir fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna hafa verið sagðar grímu­lausar árásir á helstu grunn­stoð­ina fyrir því að inter­netið virkar svona vel, þar ríkir full­komið jafn­ræði. Hags­muna­sam­tök sem mynduð voru gegn áformum fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna segja að net-hlut­leysi (e. net-neutrality) hverfi ef þau fái að verða að veru­leika og inter­netið, eins og við þekkjum það í dag, muni í reynd deyja í kjöl­farið. Vefsíður í eigu þeirra fyr­ir­tækja sem muni borga hátt verð fyrir auk­inn hraða muni ein­oka inter­netið, og skerða mögu­leika almenn­ings til þess að nýta sér það.

Úrskurðurinn í dag vinnur hins vegar gegn þessum áformum fjarskipta­fyrir­tækjanna, og skilgreinir aðgengi að interneti sem almanna­þjónustu, en samkvæmt New York Times er þessi niður­staða líkleg til þess að hraða því að breiðbands­internet­tengingar verði tengdar við bandarísk heimili, sem hluti af grunn­þjónustu, á næstu misserum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár