Stórslys í Miðjarðarhafinu - óttast að hundruð hafi látist

Óttast er að hundruð manna hafi látist þegar bát hvolfdi í Miðjarðar­hafinu í nótt, en um 700 flótta­menn voru á bátnum þegar honum hvolfdi. Umfangs­miklar björgunar­aðgerðir eru í nú í gangi skammt undan ströndum ítölsku eyjunnar Lampedusa. Josep Musca, forsætis­ráðherra Möltu, segir að um „stórslys“ sé að ræða og björgungarstarfið sé í kappi við tímann.

Slysið varð þegar björgunar­skip kom að bátnum þar sem flóttfólkið var, en bátnum hvolfdi þegar það reyndi í örvæntingu að komast nærri björgunar­skipinu.

Samkvæmt tilkynningu frá ítölsku landhelgis­gæslunni, sem breska ríkis­útvarpið BBC vitnar til í umfjöllun sinni, eru fiskibátar, skemmtiferðar­skip og björgunar­skip öll á staðnum til að aðstoða, en 28 hefur verið bjargað þegar þetta er skrifað.

Algengt er að flótafólk reyni að komast yfir Miðjarðar­hafið til Ítalíu, frá Afríku og Mið-Austur­löndum. Þetta hefur færst í vöxt að undan­förnu, samhliða vaxandi átökum víða í þessum álfum. Í fyrra komu 170 þúsund flótta­menn þessa leið yfir Miðjarðar­hafið og upp á land á Ítalíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár