Samfylkingin mælist með minnsta fylgi sitt í sögunni - Píratar með þriðjungsfylgi

Sam­fylk­ingin mælist með 9,3 pró­sent fylgi í nýj­ustu skoð­ana­könnun MMR sem birt var í dag. Það er minnsta fylgi sem hún hefur nokkru sinni mælst með. Píratar bæta lít­il­lega við sig og mæl­ast með 33,2 pró­sent fylgi. Flokk­ur­inn hefur nú mælst með yfir 30 pró­sent fylgi í fimm könn­unum MMR í röð. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig 0,5 pró­sentu­stigum og mælist með 23,8 pró­sent fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir 0,6 pró­sentu­stigum við sig og mælist nú með 10,6 pros­ent fylgi. Vinstri grænir myndu fá tólf pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag en Björt fram­tíð heldur áfram að hrapa, og mælist með 5,6 pró­sent fylgi.

Könnunin var fram­kvæmd dag­anna 24. til 30. júní 2015.


Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina dalar á ný eftir að hafa tekið lít­inn kipp upp á við í síð­ustu könnun MMR, sem var birt 24. júní. Nú styðja ein­ungis 30,4 pró­sent aðspurðra rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Í síð­ustu könnun mæld­ist stuðn­ingur við hana 31,9 pró­sent. Til sam­an­burðar mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, sem sat við völd á árunum 2009 til 2013, 31,5 pró­sent þegar hún lét af störfum. Þegar sú rík­is­stjórn hafði setið í hálft kjör­tíma­bil mæld­ist stuðn­ingur við hana 31,5 pró­sent í könnun MMR, eða lítið eitt meiri en stuðn­ingur við núver­andi rík­is­stjórn er á sama tíma.

Samfylkingin í verulegum vandræðum


Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hefur hríð­fallið und­an­farin miss­eri og flokk­ur­inn virð­ist vera í miklum vand­ræðum við að höfða til kjós­enda. Flokk­ur­inn fékk 12,9 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum, sem þótti afleit nið­ur­staða, og tap­aði meira fylgi á milli kosn­inga en nokkur flokkur í sögu lands­ins hefur gert. Fyrir tæpu ári síðan í ágúst 2014, virt­ist Sam­fylk­ingin vera að ná sér á strik og fylgið mæld­ist í kringum 20,3 pró­sent. Síðan þá hefur það verið á hraðri nið­ur­leið og fór í fyrsta sinn undir tíu pró­sent í könn­unum MMR í þeirri sem var birt í dag, en fylgi Sam­fylk­ingar mælist nú 9,3 pró­sent. Miðað við það er Sam­fylk­ingin næst minnsti flokkur lands­ins.

Líkt og und­an­farna mán­uði þá eru hinir flokk­arnir sem taldir eru til kerf­is­flokka íslenskra stjórn­mála einnig í miklum vand­ræðum við að ná til kjós­enda. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem er sögu­lega mælist nán­ast alltaf stærsti flokkur lands­ins, er langt frá því að mæl­ast í þeim hæðum sem hann er vanur. Fylgi flokks­ins mælist nú 23,8 pró­sent,sem er tölu­vert undir kjör­fylgi flokks­ins í síð­ustu kosn­ingum, þegar hann hlaut næst­verstu útkomu sína í sög­unni.

Sömu sögu er að segja af Fram­sókn­ar­flokknum, sem leiðir sitj­andi rík­is­stjórn. Flokk­ur­inn fékk 24,4 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum en mælist nú 10,6 pró­sent fylgi. Fylgi hvor­ugs stjórn­ar­flokks­ins hefur auk­ist mikið eftir að þeir kynntu viða­mikla áætlun sína um losun hafta í byrjun júní­mán­aðar.

Ekki mjög björt framtíð hjá Bjartri framtíð


Sá flokkur sem er að sýna einna mestan stöð­ug­leika í könn­unum allra þeirra sem kanna fylgi stjórn­mála­flokka eru Vinstri grænir. Fylgi þeirra mælist stöðugt um og yfir tíu pró­sent og tekur lít­inn kipp upp á við í nýj­ustu könnun MMR. Þar mælist fylgi þeirra slétt tólf pró­sent.

Þeir tveir flokkar sem komu nýir inn á Alþingi eftir kosn­ing­arnar vorið 2013 eru hins vegar að upp­lifa tvo algjör­lega ólíka veru­leika. Píratar, sem rétt skriðu inn á þing og fengu þrjá þing­menn, fara með him­in­skautum og mæl­ast með 33,2 pró­sent fylgi. Það sem vekur einna mest athygli er hversu stöðugt þetta háa fylgi flokks­ins hefur verið í und­an­förnum könn­unum. Hjá MMR hefur hann nú mælst með yfir 3o pró­sent í fimm könn­unum í röð og yfir 20 pró­sent í sjö könn­unum í röð.

Hinn nýji flokk­ur­inn, Björt fram­tíð, er að sama skapi í frjálsu falli og mælist með lang­minnst fylgi þeirra flokka sem eiga full­trúa á Alþingi, eða 5,6 pró­sent. Ef kosið yrði í dag myndi Björt fram­tíð rétt svo skríða yfir fimm pró­sent þrösk­uld­inn sem þarf til að ná inn þing­manni. Þetta er mik­ill við­snún­ingur frá stöðu flokks­ins í könn­unum fyrir ári síðan. Í lok júní 2014 mæld­ist fylgi flokks­ins 21,8 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár