Frakkar hætta við að refsa vændiskaupendum

Öldunga­deild franska þingsins hefur snúið við ákvörðun fulltrúa­deildarinnar um að gera kaup á vændi ólögleg. Fulltrúa­deildin ákvað fyrir sextán mánuðum síðan að innleiða sektir upp á 1.500 evrur á kaupendur vændis, og færa þar með refsinguna frá þeim sem selja vændi yfir á þá sem kaupa það.

Vændi er löglegt í Frakk­landi, en það má ekki reyna að selja það á almanna­færi, en vændis­konur eru oft hand­teknar á þeim forsendum. Sektin við því er mun hærri en átti að gilda um kaupendur, eða allt að 3.750 evrur og tveggja mánaða fangelsi. Þessu átti að breyta samkvæmt frum­varpinu og gera sölu á vændi alveg refsilausa. Frum­varpið byggði á sænsku leiðinni svokölluðu, en Svíar voru frumkvöðlar í því að hætta að refsa seljendum vændis en refsa í stað kaupendum. Íslensk löggjöf byggir einnig á fordæmi Svía.

Íhalds­menn eru í meirihluta í öldunga­deild franska þingsins og hafa verið frá því í september. Ríkis­stjórn Frakk­lands stóð á bak við frum­varpið sem var samþykkt árið 2013 og vildi með því vinna gegn ofbeldi og vernda þann stóra hluta vændis­kvenna í Frakk­landi sem eru fórnar­lömb mansals. Félagsmála­ráðherra Frakk­lands, Marisol Touraine, gagnrýndi ákvörðun öldunga­deildarinnar harðlega, og sagði hana ótrúlega og sýna algjöra fyrirlitningu gagnvart konum.

Stuðnings­menn frum­varpsins höfðu margir vonast til að réttar­höldin yfir Dominique Strauss-Kahn, fyrr­verandi framkvæmda­stjóra Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins, myndu hafa áhrif á ákvarðana­töku öldunga­deildarinnar. Maud Oliver, þingmaður fyrir sósíal­ista, sagði að réttar­höldin, þrátt fyrir að þau hafi svo verið blásin af, hafi varpað ljósi á sann­leikann bak við vændið. „Það er ekkert val; ofbeldi er alltaf til staðar.“

Samkvæmt mati innan­ríkis­ráðuneytisins eru um 30 þúsund einstaklingar í vændi í Frakk­landi, og yfir 80 prósent þeirra eru frá öðrum löndum en Frakk­landi. Flestir eru frá Austur-Evrópu, Afríku, Kína og Suður-Ameríku.

Haldin voru mótmæli í París um helgina vegna málsins, en bæði frum­varpinu og óbreyttu ástandi hefur verið mótmælt, að sögn France 24. „Við þurfum að ráðast gegn mafíunni, en ekki þessum konum,“ sagði öldungar­deildar­þing­maðurinn Esther Benbassa á mótmælunum á laugardag. „Við höfum stigið skref aftur á bak. Og allt þetta til þess að gefa samfélaginu yfirborðs­siðferði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár