Spotify ætlar í samkeppni við Youtube og Facebook á netmyndbandamarkaði

Tónlistar­veitan Spotify er að undirbúa innreið á netmyndbanda­markaðinn, samkvæmt frétt Wall Street Journal. Þar ætlar sænska fyrir­tækið að takast á við risa á borð við Youtube og Facebook.

Í frétt blaðsins segir að Spotify hafi átt í viðræðum við þónokkra stóra aðila innan stafræna fjölmiðla­heimsins um mögulegt samstarf. Á meðal þeirra eru fyrirtæki sem sérhæfa sig í að búa til og dreifa efni á Youtube. Hugmyndin er þá að efni þeirra fari frekar á nýjan vettvang Spotify auk þess sem fyrir­tækin myndu framleiða nýtt efni sérstak­lega í samstarfi við Spotify. Þá hafa viðræður einnig átt sér stað við hefð­bundnari fjölmiðla­fyrirtæki.

Á meðal fyrir­tækja sem Spotify hefur átt í viðræðum við eru Time Inc., Tastemade, Maker Studio og Fullscreen. Búist er við því að Spotify kynni mögulega þessa breytingu í þessum mánuði. Þegar hefur verið boðað til kynningar á vegum sænska fyrir­tækisins þann 20. maí næst­komandi en engar upplýsingar hafa verið gefnar um hvað standi til að kynna.

Mikið tap á rekstri Spotify


Þótt vöxtur Spotify hafi verið gríð­ar­legur und­an­farin ár, og lík­ast til hafa fá ef nokkur fyr­ir­tæki hrist jafn ræki­lega upp í tón­list­ar­geir­anum með jafn afger­andi hætti og það und­an­farin ár, hefur fyr­ir­tækið aldrei skilað hagn­aði.

Í fyrra námu tekjur Spotify 172 milljörðum króna, en samt tapaði fyrir­tækið 26 milljörðum króna á árinu. Það var meira tap en árið 2013 þegar tapið nam um níu milljörðum króna.

Alls eru notendur Spotify um 60 milljónir alls, en greiðandi áskrifendur eru um 15 milljónir. Stjórn­endur fyrir­tækisins segja að tapið skýrist fyrst og fremst að kostnaði vegna vöru­þróunar, aukningu á þjónustu og ýmis konar leyfis­málum.

Þessi staða, að Spotify sé enn að tapa stórum fjárhæðum, gæti skýrt að hluta áform fyrir­tækisins um að fara inn á netmyndbands­markaðinn. Í gegnum hann getur fyrir­tækið nefnilega haft miklar auglýsinga­tekjur.

Það er þó ekki auðvelt að ná fótfestu á netmyndbanda­markaðinum. Youtube trónir þar yfir öðrum og tekur 45 prósent af öllum auglýsinga­tekjum myndbanda sem sýnd eru á veitunni. Alls námu tekjur Youtube, sem er í eigu Google, um 528 milljörðum króna í fyrra. Samt skilaði fyrir­tækið rétt svo hagnaði. Facebook hefur einnig verið að færa sig mjög upp á skaftið á netmyndbanda­markaðinum. Það eru því engir smá fiskar sem Spotify ætlar að fara að slást við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár