Litla uppboðshúsið sem gat og varð að umdeildu stórfyrirtæki

Þegar Bengt Sundström keypti lítið uppboðshús í Danmörku árið 1998 grunaði hvorki hann né aðra að 17 árum síðar yrði fyrir­tækið orðið hið lang stærsta sinnar tegundar á Norður­löndum. Hann lætur þó ekki staðar numið og stefnir að því að uppboðs­húsið verði með útibú í öllum þeim löndum sem IKEA er með verslanir.

Bengt Sundström er fæddur og uppalinn í Svíþjóð, nýorðinn sextugur. Hugurinn hneigðist snemma til viðskipta og hann sótti menntun sína meðal annars til Sviss, þar sem stundaði nám í IMD viðskipta­háskólanum. Að námi loknu stundaði hann ýmis störf, var til dæmis í sex ár sölu­stjóri hjá Rank Xerox (heitir Xerox í dag) og síðan um fimm ára skeið hjá uppboðs­húsi Bruun Rasmussen í Kaupmanna­höfn. Hjá Bruun komst Bengt Sundström í kynni við viðskipti með listaverk, kynntist mörgum lista­mönnum og listaverka­söfnurum og listaverka­sölum um allan heim. „Ég kynntist þessum spennandi heimi innanfrá,“ sagði hann sjálfur í blaða­viðtali.

Keypti uppboðshús


Árið 1998 var lítið upp­boðs­hús í Kaup­manna­höfn, Lauritz Christensen Auktioner, aug­lýst til sölu. Bengt Sund­ström sló til og keypti fyri­tækið. „Þessi heimur heill­aði mig, ég var líka orð­inn nokkuð kunn­ugur upp­boðs­heim­inum, þetta gamla upp­boðs­hús (stofnað 1885) var líka virt og þekkt víða um heim: Þetta var mitt tæki­færi,“ sagði Bengt Sund­ström síðar í við­tali um ákvörðun sína.

Hinn nýi eigandi hugsaði stórt og ekki þurfti lengi að bíða eftir breytingum. Árið 1999, einu ári eftir eigenda­skiptin, tilkynnti Bengt Sundström að framvegis yrði uppboðshús hans einungis á netinu og héti framvegis Lauritz.com. Þegar hann skýrði frá þessum breytingum sagðist hann þess fullviss að netuppboð ættu fram­tíðina fyrir sér, þó svo að hin hefð­bundnu uppboð yrðu áfram til staðar. „Ég hef ákveðið að fara aðra leið,“ sagði Bengt Sundström. Hann hefur þó tæpast rennt grun í að fyrirtæki hans myndi stækka jafn mikið og raunin hefur orðið.

Lauritz.com orðið stórfyrirtæki


Þegar Bengt Sund­ström keypti fyr­ir­tækið voru starfs­menn­irnir fimm og árs­veltan 12 millj­ónir danskar krónur (238 millj­ónir íslenskar). Í dag eru starfs­menn­irnir tæp­lega 400 og á síð­asta ári nam veltan 1,2 millj­örðum danskra króna (tæpum 24 millj­örðum íslenskum).

Þegar Sundström keypti fyrir­tækið var starfsemin á einum stað, Kaupmanna­höfn, en nú er Lauritz.com með starfsemi á 23 stöðum í fjórum löndum, Svíþjóð, Þýska­landi og Belgíu, auk Danmerkur. Starfsemin er umfangs­mest í Danmörku, þar er Lauritz.com með 13 vöru- og lagerhús þar sem viðskipta­vinir geta skoðað vörur sem eru til sölu og komið með til skoðunar og fengið metið verðgildi hluta sem þeir vilja hugsanlega selja. Enn er þó langt í að starfsemin teygi sig til allra þeirra landa sem IKEA hefur starfsemi en það er markmið eigandans.

Í gegnum uppboðs­síðuna hafa milljónir hluta skipt um eigendur en skráðir notendur uppboðs­síðunnar Lauritz.com eru vel á aðra milljón. Húsgögn, listaverk, skart­gripir, ljós, leikföng, úr og klukkur, teppi, eldhús­áhöld, raftæki, búsáhöld og svo framvegis, og svo framvegis. Allt þetta og margt margt fleira er í boði. Bíla, skip og flugvélar er ekki hægt að kaupa á uppboðs­síðunni og stendur ekki til að sögn Bengt Sundström.

Ekki allt ekta


Oft er mis­jafn sauður í mörgu fé. Þannig hljóðar gam­all máls­háttur, sem skýrir sig sjálfur. Lauritz.com hefur ekki farið var­hluta af ýmis konar svindli og braski. Það snýst einkum um að hlut­irnir eru ekki það sem þeir eru sagðir vera, kaup­and­inn telur sig vera að kaupa ekta vöru sem reyn­ist svo þegar að er gáð vera ódýr eft­ir­lík­ing. Starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins hefur líka margoft verið sakað um að ganga ekki úr skugga um að rétt sé rétt, hafi jafn­vel meiri áhuga fyrir að selja hlut­ina en kanna málið til hlítar.

Fyrir tveimur árum var talsvert fjallað um það í dönskum fjöl­miðlum að kona nokkur hefði keypt sex stóla fyrir samtals 14 þúsund danskar krónur gegnum Lauritz.com. Konan var himin­lifandi yfir að hafa hreppt þessa þekktu stóla, sem voru hannaðir af hjónunum Charles og Ray Eames, og eru mjög eftir­sóttir og eftir því dýrir.

Fljótlega vöknuðu þó hjá konunni grun­semdir um að ekki væri allt með felldu, hún fór með stólana í verslun sem selur meðal annars húsgögn hönnuð af Eames hjónunum. Þar fékk konan að vita að hún hefði keypt köttinn í sekknum, stólarnir væru einungis léleg eftir­líking. Hjá Lauritz.com sögðust menn koma af fjöllum og endur­greiddu konunni stólana. Kontant, neytenda­þáttur danska sjón­varpsins tók hinsvegar málið og upp og komst að því að uppboðs­fyrirtækið hafði haft fjöldann allan af sams konar stólum til sölu, þeir voru allir fram­leiddir í Kína og fyrir þá sem til þekkja auðvelt að sjá að þeir væru eftir­líkingar.

Sænsk lúxusrúm framleidd í Kína


Fyrir nokkrum mán­uðum komu starfs­menn sænska fyr­ir­tæk­is­ins Hästens í eitt af sýn­ing­ar­húsum Lauritz.com á Jótlandi. Þeim hafði borist til eyrna að þar væru til sýnis, og sölu, rúm sem sögð væru ekta Hästens. Hästens rúmin þykja með þeim vönd­uð­ustu og dýr­ustu sem völ er á og þess vegna vakti það athygli að Lauritz.com væri með slík rúm til sölu á verði sem var ein­ungis brot af því sem slík rúm kosta venju­lega.

Þeir hjá Hästens sáu strax að þarna var köttur í bóli bjarnar, hin svokölluðu Hästens rúm í sýningarsal Lauritz.com voru eftir­líkingar, meira að segja lélegar eftir­líkingar að þeirra dómi. Í ljós kom, að sögn Lauritz.com, að starfs­maður fyrir­tækisins hafði uppá eigin spýtur keypt 70 rúm frá Kína og flutt til Danmerkur. Dagblaðið Berlingske komst hins vegar yfir gögn sem sýna að fyrir­tækið sjálft, Lauritz.com, hafði verið með í innkaupunum og Hästens hefur nú höfðað mál gegn fyrir­tækinu.

Hér hafa aðeins verið nefnd tvö dæmi þar sem uppboðs­fyrirtækið hefur verið á hálum ís, að ekki sé meira sagt. Mörg önnur dæmi mætti nefna: úr, rauðvíns­eftir­líkingar, sófa­eftir­líkingar og fleira og fleira.

Bengt Sundström hefur sagt að fyrir­tækið Lauritz.com hafi vaxið mun hraðar en nokkurn hafi órað fyrir. Því miður sé það þannig að þótt flestir séu heiðar­legir séu alltaf skemmd epli í kassanum. „Það er ljóst að við verðum að vera enn betur á varðbergi gagnvart svindlurum. Við viljum að fólk geti treyst okkur, ef það bregst æ ofan í æ, getum við pakkað saman,“ Bengt Sundström í viðtali við danska sjón­varpið fyrir skömmu.

Sagan af „Svavarsmyndinni“


Eins og margir muna ugg­laust hafa á und­an­förnum árum komið upp nokkur mál (hjá Lauritz, Bruun Rasmus­sen og fleirum) þar sem reynt hefur verið, og stundum tek­ist, að selja mál­verk eignuð íslenskum list­mál­urum, sem við nán­ari rann­sókn hafa reynst fals­anir, eða eft­ir­lík­ingar. Lang oft­ast myndir eign­aðar Svavari Guðn­a­syni.

Fyrir þrem árum sá þessi pistla­skrifari auglýsta á vef Lauritz.com mynd, sem sögð var gerð af Svavari Guðnasyni. Pistla­höfundur komst að því, fyrir tilviljun, að Uppboðs­húsi Bruun Rasmussen hafði verið boðin myndin fyrir nokkrum árum en þar var henni hafnað á þeim forsendum að hún væri fölsuð.

Pistla­skrifari gerði sér ferð í sýningarsal Lauritz.com í nágrenni Kaupmanna­hafnar þeirra erinda að skoða umrædda mynd. Þegar í sýningar­salinn var komið og pistla­skrifari lýsti áhuga á að skoða þetta verk, merkt Svavari Guðnasyni var spurt hvort sá sem vildi skoða væri Íslend­ingur. Hefur kannski heyrst á hreimnum. Ekki gat pistla­skrifari neitað upprunanum en svo undarlega bar þá við að myndin, merkt Svavari Guðnasyni fannst ekki í sýningar­salnum. Starfs­menn klóruðu sér í kollinum en það breytti engu, myndin var horfin.

Pistla­skrifara þótti þetta fremur einkennilegt en fór heim án þess að hafa séð myndina. Einhverra hluta vegna hvarf svo þessi mynd af vef Lauritz.com áður en kom að þeim tíma sem myndin skyldi seld. Maður sem vinnur „í þessum bransa“ og pistla­skrifari er málkunnugur fullyrðir að eigandinn hafi dregið hana til baka og ætli nú að bíða rólegur í nokkur ár, áður en hann reynir að selja hana aftur, það yrði þá þriðja tilraunin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár