Fyrsti opinberlega samkynhneigði einstaklingurinn kosinn á færeyska þingið

Sonja Jógvansdóttir, samkyn­hneigð færeysk baráttu­kona, var einn sigurvegara færeysku þing­kosninganna sem fram fóru í gær. Í Færeyjum kjósa kjósendur bæði flokka og staka einstaklinga og hlaut Sonja þriðja mesta fjölda atkvæða einstaklinga á eftir formönnum þeirra tveggja flokka sem unnu mestan kosningar­sigur. Formenn fráfar­andi stjórnar­flokka fengu báðir færri atkvæði en Sonja. Með árangri sínum brýtur Sonja blað í sögu Færeyja því hún er fyrsti opinber­lega samkyn­hneigði einstaklingurinn til að setjast á færeyska þingið.

Samsteypu­stjórn Kaj Leo Johannessen, fráfar­andi lögmanns Færeyja, féll í kosningunum. Sambands­flokkur hans hlaut tæplega 19 prósenta fylgi og sex þingmenn. Fólka­flokkurinn fékk svipað fylgi en Framsókn og Miðflokkurinn fengu tvo þingmenn hvor. Þá náði Þjóðveldis­flokkurinn sjö þing­mönnum inn á þing. Nýtt sjálvstýri fékk síðan tvo þingmenn.

Javnaðarflokkurinn, undir forystu Aksel V. Johannesen, var hins vegar sigurvegari kosninganna og allar líkur á því að Aksel verði næsti lögmaður Færeyja. Flokkurinn fékk um 25 prósent atkvæða og náði átta mönnum inn á þing.






Niður­staðan þýðir að fráfar­andi stjórn vantaði einn þingmann til að halda meirihluta, fékk sextán þingmann af 33.

Jenis av Rana, formaður Miðflokksins í Færeyjum, var endur­kjörinn á þing. Hann er Íslendingum góðkunnur eftir að hafa neitað að sitja veislu með Jóhönnu Sigurðar­dóttur, þáverandi forsætis­ráðherra Íslands, og eiginkonu hennar, Jóninu Leós­dóttur, vegna samkyn­hneigðar þeirra. Jenis taldi heimsókn Jóhönnu "hreina ögrun" þar sem hún væri "ekki í samræmi við heilaga ritningu".

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár