Nýir starfsmenn fá verri kjör

Eftir 1. maí munu allir starfs­menn sem ráðnir verða á hjúkrunar­heimili á Akureyri sæta verri kjörum en þeir sem þar eru fyrir. Einka­hluta­félagið Heilsu­vernd hjúkrunar­heimili tekur við rekstri allra hjúkrunar­heimila eftir þann tíma.

Akureyrabær
Akur­eyra­bær Starfs­menn hjúkr­un­ar­heim­ila í Akur­eyr­arbæ brá heldur í brún þegar þeir fréttu að lækka eigi laun nýrra starfs­manna hjúkr­un­ar­heim­ila í kjöl­far þess að sveit­ar­fé­lagið lét rekstur þeirra í hendur einka­hluta­fé­lags

Nýir starfs­menn á öldrunar­heimilum á Akureyri verða ráðnir inn á verri kjörum en aðrir. Starfs­mönnum öldrunar­heimila þar á bæ brá heldur betur í brún þegar N4 birti viðtal við Ásthildi Sturlu­dóttur, bæjar­stjóra á Akureyri, á þriðjudag þar sem fram kom að starfs­menn öldrunar­heimila verði á öðrum kjara­samningum þegar einka­hluta­félagið Heilsu­vernd hjúkrunar­heimili tekur við rekstri þeirra nú í byrjun maí. 

Helga Erlings­dóttir, framkvæmda­stjóri öldrunar­hjúkrunar á Akureyri, segir í samtali við Stundina að í fréttir af málinu hafi valdið misskilningi á meðal starfs­manna. „Þeim brá,“ segir Helga. „Það varð ruglingur um að þetta ætti einnig við um þá starfs­menn sem fyrir starfa á hjúkrunar­heimilum. En það er alveg ljóst að þetta nær bara til nýrra starfs­manna eða þar til nýir kjara­samningar taka gildi,“ segir Helga. 

Í viðtalinu við Ásthildi á N4 kemur fram að lög um aðilda­skipti tryggi að núverandi starfs­menn haldi sínum kjörum út samnings­tímabil gildandi kjara­samninga. „Kostnaðurinn við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðlaugur Jóhannsson skrifaði
    það er stefnan hjá flestum firirtækjum og. atninurekendum ? að fá vinufólkið . fyrir sem allra minst. launn .? burtséð hvort hæggt er að lyfa á þeim '' eðurey ? útt boð . á þessari vinu munn ekki skilla. þeim . gæðum verksins sem .þarf fyrir. Dvallar Fólkið ? það er pottþét.---- verktakkar í svona verkum. þurfa HAGNNAÐ ?.SEM MESTAN. helst í ( tuggamiljónum ) en kosta sem minstu til.
    0
  • Margrét Rögnvaldsdóttir skrifaði
    Þetta er í boði Vg það er komin tími á það að þau sameinist Sjöllunum því að er að verða lítil munir á þessum tveimur flokkum 👎
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár