Messi kominn með 400 mörk fyrir Barcelona - einstakt afrek

Argentínu­maðurinn Lionel Messi innsiglaði 2-0 sigur Barcelona á Valenica í dag, með marki í blálok leiksins. Barcelona er nú í góðri stöðu á toppi spænsku deildarinnar, með 78 stig, fimm stigum meira en Real Madrid, sem mætir Malága í kvöld.

Markið hjá Messi var mark númerið 400 hjá honum fyrir Barcelona. Það er ótrúlegt afrek hjá Argentínu­manninum, en á þeim tíu tímabilum sem Messi hefur leikið með aðalliði Barcelona, hefur hann skorað að meðaltali 40 mörk, fram til dagsins í dag, sem verður að teljast einstakt afrek og fátítt dæmi um stöðuga frábæra frammistöðu.

Messi hefur fjórum sinnum verið valinn leikmaður ársins hjá FIFA, 2009, 2010, 2011 og 2012, og hefur átta ár í röð verið meðal þeirra þriggja sem til greina koma sem leikmenn ársins. Hann verður 28 ára gamall 24. júní næst­komandi.

And that was Leo Messi's 400th goal for FC Barcelona! #FCBlive pic.twitter.com/IVMvGnA9px

— FC Barcelona (@FCBarcelona) April 18, 2015

Messi er þegar orðinn marka­hæsti leikmaður Barcelona frá upphafi, og á flest metin í sögubókum félagsins.

Mörk­in 400 hjá Messi, skiptast svona niður eftir keppnum:

278 í spænsku 1. deild­inni
75 í Meist­ara­deild Evr­ópu
32 í spænsku bik­ar­keppn­inni
10 í spænska Stór­bik­arn­um
4 í heims­bik­ar fé­lagsliða
1 í Stór­bik­ar Evr­ópu

https://www.youtube.com/watch?v=Hr8XCLWOn4w

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár