Spennan magnast milli Rússa og Tyrkja - Eftirlifandi flugmaður segist hafa verið í lofthelgi Sýrlands

Flugmaður sem komst lífs af, þegar herþota rússneska hersins var skotin niður af tyrkneska hernum í fyrradag, segir það af og frá að tíu til tólf viðvaranir hafi borist, eins og yfirvöld í Tyrklandi hafa haldið fram, og svo sé það ekki rétt að þotan hafi verið skotin niður í Tyrklandi, heldur hafi það gerst í lofthelgi Sýrlands. Þar hafi rússneski herinn verið á undan­förnum vikum í samvinnu við stjórnarher Sýrlands, undir stjórn Assad forseta, og því hafi engin alþjóðalög verið brotin.

Þetta kemur fram á vef breska ríkis­útvarpsins BBC en Sergei Lavrov, utan­ríkis­ráðherra Rússlands, hefur sagt að framferði Tyrkja sé hrein ögrun við Rússa, og það skipulögð ögrun. Vladímir Pútín forseti Rússlands er sagður æfur vegna atburðarins, og er sjálfstæð rannsókn nú í gangi á vegum Rússa, en þeir halda því fram að Tyrkir hafi verið órétti þegar þotan var skotin niður. Pútín hefur sagt að þessi aðgerð Tyrkja muni hafa „alvarlegar afleiðingar“ í för með sér.

Barack Obama, forseti Banda­ríkjanna, lét hafa eftir sér á blaðamanna­fundi í gær, að Tyrkir væru í fullum rétti að verja sína lofthelgi og því væri ekki hægt að segja að þetta hafi verið rangt hjá Tyrkjum. Þá hefur Atlantshafs­bandalagið NATO einnig lagt blessun sína yfir aðgerðir Tyrkja, og ítrekaði Jens Stoltenberg, framkvæmda­stjóri, þá afstöðu í gær.

Konstantin Murakhtin, sá sem komst lífs af eftir tólf tíma björgunar­aðgerðir sérsveita rússneska hersins, sagði í viðtali við fjölmiðla í Rússlandi í morgun, að hann þekkti vel til á þeim slóðum þar sem hann var á flugi ásamt félaga sínum, og það væri alveg öruggt að hann hefði ekki verið í lofthelgi Tyrklands, „ekki einu sinni í eina sekúndu“. Vélin var skotin nær alveg á landa­mærum Tyrklands og Sýrlands, en eins og að framan greinir þá er hart deilt um hvoru megin vélin var í loft­helginni.

Rússar hafa haldið uppi loft­árásum í Sýrlandi, við hlið stjórnar­hersins, undan­farinn mánuð og segjast fyrst og fremst einblína á íslamska ríkið sem helsta óvin. Frakkar, Bretar og Bandaríkja­menn, ásamt bandalagi fleiri þjóða, berjast einnig gegn íslamska ríkinu en eru ekki tilbúin að styðja stjórnarher Sýrlands á meðan Assad er við stjórnvölinn. Honum sé ekki treystandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár