Mögulegur forsetaframbjóðandi fékk um níu milljónir frá forsætisráðuneytinu

Einka­hluta­fé­lag í eigu Hrannars Pét­urs­sonar, sem íhugar nú for­seta­fram­boð fékk tæpar níu millj­ónir króna greiddar frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu fyrir ráð­gjöf á sviði upp­lýs­inga­mála. Hrannar var ráð­inn til ráðu­neyt­is­ins í des­em­ber 2014 til að stýra heild­ar­end­ur­skoðun á stefnu Stjórn­ar­ráðs­ins í upp­lýs­inga- og sam­skipta­málum. Upp­haf­lega átti ráðn­ingin að vera til tveggja mán­aða en starfs­tími Hrannars í ráðu­neyt­inu lengd­ist og hann starf­aði þar sem verk­efn­is­stjóri út októ­ber síð­ast­lið­inn.

Þetta kemur fram í svari Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni Vinstri grænna, um sund­ur­lið­aðan ráðu­neyt­is­ins kostnað við sér­fræði-, ráð­gjafar- og kynn­ing­ar­störf á árinu 2014 og 2015.

Greiðslur til félags Hrannars, sem heitir G 47 ehf., eru næst hæstu greiðslur til ein­staks aðila sem ráðu­neytið greiddi fyrir slík störf á tíma­bil­inu. Mest fékk félagið Meltún ehf., í eigu lög­manns­ins Eiríks Svav­ars­sonar, vegna vinnu fyrir ráð­gjafa­hóps um afnám hafta. Alls greiddi for­sæt­is­ráðu­neytið félagi Eiríks 9,1 milljón króna fyrir þá ráð­gjöf.

Stjórnarmaður í Seðlabankanum fékk sex milljónir

Þá fékk félagið Framlag ehf. 6,2 millj­ónir króna vegna vinnu fyrir ráð­gjafa­hóp um afnám hafta. Framlag er í eigu Jóns Helga Egils­sonar, sem situr meðal ann­ars í stjórn Seðla­banka Íslands sem full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Seapool ehf., félag í eigu Sigurðar Hann­es­sonar, fékk þrjár millj­ónir króna greiddar fyrir að vinna fyrir sér­fræð­inga­hóp um höf­uð­stólslækkun hús­næð­is­lána. Sigurður leiddi þann hóp og var auk þess í lyk­il­hlut­verki í fram­kvæmda­hópi stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta. Greiðslur vegna þeirra starfa eru ekki til­greindar í sund­ur­liðun for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins vegna fyr­ir­spurnar Katrínar.

Þá fékk Stafna­sel slf., félag í 99 pró­sent eigu Halldórs Benja­míns Þor­bergs­sonar, 6,7 millj­ónir króna fyrir verk­efni vegna verð­trygg­inga­mála. Halldór Benjamín, sem er hag­fræð­ingur, vakti athygli þegar hann stýrði hálf­tíma langri kynn­ingu á skulda­nið­ur­færsl­unni, hinni svoköll­uðu Leið­rétt­ingu, í nóv­em­ber í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár